Fleiri myndir úr páskafríi

 

 

 

 

 

Fallegt sólarlag á páskadagskvöld

 

 

 

Ekki annað hægt en að taka endalaust af myndum af þessum sætu bræðrum :o)

 

 

 

Ástþór Örn eyðir ansi miklum tíma á "skrifstofunni" hér í Dal og teiknar

 

 

 

 

Í morgun drifum við okkur út í smá göngutúr. Ég öfunda alltaf svolítið svona dúðuð kríli að kúra sig í vagni!

 

 

 

Rölt af stað í hæglætisveðri

 

 

 

Alltaf stutt í grínið hjá þessum strák

 

 

 

Röltum okkur alla leið niður að Straumfjarðará

 

 

 

Ansi vetrarlegt niður við ána

 

 

 

 

 

 

Þó að það sé nú svolítið langt í vor og sumar hlökkum við mikið til að rölta niður að á og heyra fuglasöng og laxa stökkva!

 

 

 

Í gær breyttist ég í pabba minn sem á það til að vera svolítið annars hugar þegar hann keyrir um Dalslandið!

Ég var að koma keyrandi úr veiðihúsinu (keyrði á milli því ég var með þvott í pokum!) og var

 ansi djúpt hugsi að skoða plönturnar sem búið er að setja niður og ímynda mér hvar ákjósanlegt væri að

koma enn fleiri niður keyrði ég inn á vegstubb sem við Dalsbúar notum á milli Dals og veiðihússins...en er ófær núna.

Ég alveg í öðrum heimi náði því að festa mig illilega. Sigurður var heillengi að moka bílinn lausan og hér má sjá

vegsummerki. Pabbi minn hefði verið á stærri bíl með betra drifi og því hefði hann væntanlega komist upp með

að keyra svona aðeins annars hugar í gær!!

 

 

 

 

 

Í dag var snjósleðanum komið fyrir og gengið frá honum á sinn stað. Ástþór Örn settist á hann og

lét sig dreyma!

 

 

 

 

 

Duglegur stóri bróðir að keyra vagninn