13. mars
Jæja! Af okkur er nú eitt að frétta: veikindi! Ástþór Örn vaknaði með flensu á föstudagsmorgun og var voðalega veikur. Á laugardaginn fór Sigurður með hann og fékk tekið "smita-kokka" próf, sem reyndist neikvætt og læknirinn úrskurðaði að hann væri að taka flensuna. Okkur leist hins vegar ekki á blikuna þegar barnið fór yfir 40°C sjötta daginn í röð og fengum tíma hjá lækninum okkar á heilsugæslunni í gær. Þá var hann kominn með berkjubólgu og snert af lungnabólgu og fór því á sýklalyf. Þau fóru að virka í gær og í dag var hann svo loksins hitalaus. Núna er því bara að halda aftur af þessum strák sem lætur eins og hann sé orðinn fullfrískur og þarf því að minna hann oft á að hægja svolítið á sér. Einn orðinn ansi þreyttur á ástandi síðust daga. Þessi veikindi hafa aldeilis haft áhrif á félagslíf piltsins því hann missti af þremur afmælum, mjög fúlt. Ég hef svo greinilega tekið eitthvað af þessum eftirhretum hans upp því ég þorði ekki annað en að fara og láta hlusta mig í dag. Á að taka því rólega næstu daga, læknirinn taldi það sem betur fer duga til að mér myndi batna.
Hér eru svo nokkrar myndir, aðallega af Arnaldi Kára sem hefur verið í meira myndatökustuði en Ástþór Örn.

Slappað af og litið í bók!

Dúlli að reyna að koma snuddu í munninn









Amma Kata færði ömmustráknum sínum páskaegg um fyrir nokkrum dögum og í dag
var það svo opnað og gerð smá bragðprufa! Ég skil ekkert í barninu en
hann er grínlaust spenntari fyrir því hvað málshættirnir þýða og hvort töggurkaramellan
sé rauð eða svört heldur en sjálfu súkkulaðinu!!!

Ástþór Örn fór aðeins á stjá í dag og tókum við eitt spil.

Arnaldur Kári er svo að fara í þriggja mánaða skoðun á morgun og fær þá sína fyrstu mótefnasprautu.
Vonum að hún fari ekki illa í hann litla skinnið.