5. mars
![]()
Datt í hug að setja inn nokkrar myndir af sætu bræðrunum! Allt bara fínt að frétta af okkur. Eldsnemma í morgun eignuðumst við litla frænku þegar Kiddý frænka okkar og Kári maðurinn hennar eignuðust yndislega
mikla krúsidúllu, heilar 19 merkur og 54 cm. Við Arnaldur Kári erum sérstaklega spennt að fá þær mæðgur kannski með okkur stundum í smá göngutúra þegar verður farið að vora.
Og á morgun á hann Ólíver frændi okkar afmæli, verður fjögurra ára. Mér finnst voðalega stutt síðan hann kom í heiminn!
Helgin er svo nokkuð þétt skipulögð, Ástþór Örn að fara í tvö afmæli og fleira á dagskránni. Nóg að gera!

Ástþór Örn stórkaupmaður

Um daginn kom Björg í heimsókn og næst held ég að Ástþór Örn vilji alveg sitja einn
að þessum skemmtilega gesti og ræða um Tinna. Hann var nú svo mikil dúlla að hann
var hér búinn að finna til hlustunarpípuna úr læknisdótinu og ætlaði að spyrja "fólklækninn"
nokkurra spurninga, en lagði ekki í það þegar á hólminn var komið og faldi hlustunarpípuna bara
undir borði á meðan Björg var í heimsókn!!

Hress kútur í baði

Og líka í svaka stuði á teppinu


Svolítið þreyttur að skoða bók!

Krúsidúllubræður að knúsast




![]()