1. mars

 

 

 

Kominn mars...alveg hreint ótrúlegt! Vikan nú verið hálf eitthvað undarleg hjá okkur. Ástþór Örn var með magakveisu um síðustu helgi, ég tók svo við á þriðjudag og Sigurður svo í kjölfarið!

Núna vonum við því að magastandi sé lokið í bili á þessu heimili. Annars er bara fínt að frétta af okkur. Amma Kata og afi Ástþór komu heim frá Kaupmannahöfn í gær og skruppum við

í Langagerðið og áttum notalegt kvöld með þeim og borðuðum góðan danskan "platta" í kvöldmatinn.

Í dag þurfti ég svo að skólast svolítið en  bauð svo Ástþóri Erni með mér örlítinn bæjarrúnt á meðan Arnaldur Kári fékk sér góðan lúr hér heima. Við Ástþór Örn drifum okkur svo með litla stubb út að labba í vagninum í góða veðrinu. Svolítið erfitt að komast inn á ruddu stígana hér nálægt okkur og þarf mikið að ganga á götunum, sem er ekkert allt of skemmtilegt...ég er því farin að vona að það fari eitthvað aðeins að bráðna af þessum snjó enda kominn mars.

 

 

 

Lítil dúlla með bók!

 

 

 

Þessi litli kútur okkar er yfirleitt voða hress og kátur og farinn að hlæja heilmikið að bröndurunum okkar!

 

 

 

 

 

 

Ég keypti nokkra striga í litlum stærðum handa Ástþóri Erni um daginn

og það er ógurlega spennandi að fá að mála svona alvöru málverk...

hann kallar sig einmitt listamann þegar hann fær að mála á striga

í stað þess að mála á blað!!

 

 

 

 

Listamaðurinn málar mynd handa ömmu Kötu og afa Ástþóri. Þau sjást þarna amma, afi, Píla og Trýna.

Þeim var færð myndin í gær þegar þau komu heim frá Danmörku en því miður gleymdist alveg að taka mynd

af verkinu  þegar það var tilbúið. Við getum þó vottað það að það ver ansi vel á veggnum í Langa!

 

 

 

Í dag málaði hann svo myndina "Mamma, pabbi, ég og litli bróðir inni í húsi".

Við erum ekki að baða okkur í tunglsljósi þarna heldur umlukin þoku.

En það virðist vera eitt af höfundareinkennum þessa listamanns,

þar sem þoka einkenndi líkalokaútlit fyrri myndarinnar. Kannski að hann

ætli að feta í fótspor Turners?!!?!?

 

 

Arnaldur Kári skemmtir sér vel á teppinu og þar eru fígúrurnar allaf á ferð og flugi

 

 

 

 

Loksins gott veður og við hress...tilvalið að skella sér út að labba og fara í torfæruferð með vagninn

 

 

 

Ástþóri Erni fannst aðeins formsatriði að ég væri með,

þar sem hann gæti alveg keyrt vagninn og ratað sjálfur að eigin sögn.

 

 

 

 

Mikið held ég að það sé óskaplega notalegt að sofa í vagninum

í göngutúrum! Litli snáðinn lætur fara vel um sig með yndislega silkihúfu sem hún Guðrún Lára prjónaði

og í notalega gallanum sem eyjafrænkurnar Ása, Kristín og fjölskyldur færðu honum.

 

 

 

Því miður þótti okkur  mæðginum ekkert bóla á vorinu í dag!

En ætlum fljótt aftur í göngutúr og þá ætlar Ástþór Örn að vera leiðangursstjóri

í svo kallaðan leynilund sem oft er heimsóttur af leikskólanum.

Þá er farið í gönguferð og heit sólberjasaft höfð með á brúsa.

Ástþóri Erni langar voðalega að við hér heima upplifum þessa notalegu stemmningu

og mér hefur því verið sett fyrir það verkefni að kaupa sólberjasaft svo að

það sé hægt að fara í ferð í leynilundinn á eigin vegum með okkur með í för :o)

 

 

 

Góða helgi, lifið heil!