14. febrúar
Febrúar hálfnaður og aldeilis farið að styttast í fimm ára afmæli Ástþórs Arnar. Hann komst loksins á leikskólann í gær eftir veikindin. Virðist hafa krækt sér í einhverra kvefpest með "kokkunum" því hann
varð fljótt betri í hálsinum en þá tók við hósti og slappleiki auk þess sem hann rauk svolítið upp í hita. Hann hefði nú komist fyrr á leikskólann en ágætt að leyfa honum að ná þessu betur úr sér úr því maður hefur tök á því.
Vorum hér í rólegheitum, lásum og svo var nú horft á nokkrar myndir líka - en það má nú þegar maður er lasinn og þarf að hafa sem hægast um sig.
Hér eru nokkrar myndir af þessum sætu bræðrum, sem stækka báðir svo hratt!


Þessi herramaður varð átta vikna í gær...tíminn ansi hreint fljótur að líða!

Algjör dúlli

Ástþór Örn myndasmiður tók þessa mynd af ömmu Kötu og Arnaldi Kára um daginn


Ástþór Örn í gær bara hress og kátur. Átti skemmtilegan dag á leikskólanum, enda langt síðan hann hafði
hitt alla þar. Amma og afi sóttu stúfinn sinn í gær og saman fóru þau svo í bakaríið og kíktu svo í heimsókn.
Reyndar náði Ástþór Örn afa sínum fljótlega í risaeðluleik, þannig að þeir sáust ekki mikið í kaffiboðinu!

Arnaldur Kári skellihlær að fynda stóra bróður sem er farinn að geta staðið fyrir skemmtiatriðum
á ný eftir að hafa haldið sig til hlés í veikindunum


Þessi næstum fimm ára strákur er líka svo sniðugur! Má til með að láta eitt gullkorn fylgja hér.
Ástþór Örn: Mamma veistu að það er til fólk sem er með ofnæmi fyrir birtu.
Ég: Já er það. Það hlýtur að vera ansi erfitt að vera með þannig ofnæmi.
Ástþór Örn: Já það fólk vinnur allt á næturvöktum því þá eru alltaf ljósin slökkt.