7. febar

 

 

 

Bolludagur, sprengidagur og öskudagur liðnir og venjulegur ófærðarfimmtudagur í dag! Ekki fór nú alveg eins og ætlað var með þessa daga hér þar sem Ástþór Örn veiktist aðfaranótt Bolludagsins.

Vaknaði upp með rúmlega 40° C og hæsi. Komst til heimilislæknisins okkar strax á mánudeginum og reyndist stúfurinn hafa krækt sér í streptokokkasýkingu. Hann fékk lyf, sinn annan sýklalyfjaskammt á ævinni

 og var alveg afleitur á mánudaginn og mest allan þriðjudag en svo fór þetta nú aðeins að fara upp á við í gær. Skildi nú eitthvað lítið í þessum kokkum, eins og hann kallaði þetta að vera að taka sér svona bólfestu í hálsinum á honum.

Verst þótti elsku karlinum að mega ekki knúsa hér alla og kyssa eins og venjulega, sérstaklega litla bróður.

Hann er því bara heima þessa dagana að jafna sig. Er hættur að smita en óþarfi að fara svona úr því að hann var hvort eð er búinn að missa af aðaldögunum á leikskólanum þessa vikuna.

Þar fyrir utan ekkert vit að fara út á morgni sem þessum. En hér voru nú samt borðaðar nokkrar bollur (ekki heimabakaðar þó), borðuð baunasúpa (amma Kata og afi Ástþór voru svo góð að koma með afgang af súpu í gær)

og farið í búninga í tilefni gærdagsins!

 

 

Arnaldur Kári fór í sex vikna skoðun á Bolludaginn. Gekk vel og sýndi þessi litlu

kútur mikla kurteisi með því að sleppa því að pissa á nokkurn mann og vera mikill herramaður

með því að brosa til læknisins og hjúkrunarfræðingsins!

Nýjustu tölur: 62 cm og tæp 5,2 kíló. Það er þremur cm lengra en Ástþór Örn var í sinni

sex vikna skoðun en hann var á móti örlítið þyngri.

 

     

 

Arnaldur Kári og Ástþór Örn!

 

 

 

Afi Ástþór leit kom og heimsótti afastrákana sína á þriðjudaginn. Færði Ástþóri Erni Star Wars geislasverð og

gervitennur fyrir öskudaginn! Í gær komu svo afi og amma. Amma Kata ekki komið í svo langan tíma

vegna magakveisu sem herjaði á Langagerðið. Ástþór Örn skildi ekkert orðið í því í gær hvað amma

þyrfti að vinna lengi! En við bökuðum fiðrildaköku og vorum því með smá öskudagskaffi seinni partinn.

Amma Kata kom færandi hendi og gaf sjúklingnum Shrek glas, hljóðbók með sögum fyrir svefninn og það sem

Ástþór Örn vantaði mest af öllu, Skilaboðaskjóðugeisladiskinn!

 

 

 

Lesið um ævintýri Benedikts búálfs sem er í miklu uppáhaldi hjá Ástþóri Erni

 

 

 

Lítill kútur nýkominn á ról um hádegi á öskudag!

 

 

 

Ástþór örn dreif sig í Shrekbúninginn, sem hann hafði ætlað að mæta í á leikskólann í gær.

Og í tilefni dagsins fór Arnaldur Kári í blettatígursbúning, sem hann fékk í jólagjöf frá Grenimelsbræðrunum.

Hálf hissa starir hann á Shrek!

 

 

Ástþór Örn tók nú niður grímuna því hann var hræddur um að fólk héldi

kannski að Shrek væri kominn í ALVÖRU hingað inn í stofu.

 

 

 

Aðeins farinn að hressast í gær, öskudag enda hitinn nánast horfinn og lyfin farin að vinna á "kokkunum"

 

 

Ástþór Örn með forláta Star Wars (nú eða stafrófs!!) geislasverðið!

Við komumst að því þegar við skoðuðum myndirnar af Jedimeistaranum Obi Wan Kenobi

á kassanum utan af sverðinu að það var bara ekki svo flókið að líkja eftir

búningnum hans! Við fundum því bol í réttum litum og slopp :o)

Það rann á mig hálfgerð nostalgía þar sem ég var mikill Star Wars aðdáandi hér

á mínum yngri árum - ég var bara næstum komin í að leita mér að hvítum fötum og

reyna að binda hárið í tvo hnúta eins og Lilja prinsessa - en það var nú Princess Leia kölluð hér í "den"!!

 

 

"The Force will be with you...”

 

 

 

Arnaldur Kári verður sjálfsagt aðeins meira með á nótunum á næsta öskudegi!!

 

 

 

 

 

Hafið það öll sem best og farið varlega í þessu vetrarfæri. Já og takk fyrir kveðjurnar :o)