2. febrúar

 

 

 

Febrúar genginn í garð og Ástþór Örn farinn að telja niður dagana í að hann eigi afmæli, mjög spenntur að vera að verða fimm ára!

Annars er bara allt meinhægt að frétta af okkur síðan síðast. Arnaldur Kári dafnar bara vel, er að fara í sex vikna skoðun á heilsugæsluna á mánudaginn...

og hefur Ástþór Örn miklar áhyggjur af því hvort að hann verði nokkuð píndur með sprautu! Nei það er víst aðeins í það enn þá.

 

 

Ástþór Örn heldur hér reglulega tónleika og hér var gítarinn tekinn fram og spilað með miklum tilþrifum

 

 

Þessi litli strákur að skoða bók, ætli hann verði ekki kominn í feðgabandið áður en langt um líður!!!!

 

 

Ástþór Örn veit fátt skemmtilegra en að fá að kúra svolítið með litla bróður.

 

 

 

 

Horfði nú bara grafalvarlegur á mig þegar ég reyndi að fá hann til að brosa svolítið!!

 

 

 

 

Ástþór Örn átti langa helgi að þessu sinni, tók sér frí á föstudaginn.

Sigurður var í vinnu og á námskeiði á meðan við höfðum það nú bara gott hér heima.

Höfðum ætlað í smá göngutúr saman með Arnald Kára í vagninum en lögðum ekki alveg í

það svona þegar frostið var nú farið í -10°C.

Þegar hann sat og litaði og spjallaði við mig átti hann eitt gullkorn: "Mamma...veistu að

Svarthöfði er MJÖG vondur...veistu hver hann er?...hann er í stafrófs"!   :o)

 

 

 

Þið spyrjið ykkur kannski að því hvað þetta er!?! Ástþór Örn er búinn að margsegja mér frá

fuglanammi sem þau bjuggu til á leikskólanum. Minn var alveg með uppskriftina á hreinu og hefur

endilega viljað að við byggjum svona til og hengdum í trén fyrir utan. Á föstudaginn var tilvalið að

reyna að létta smáfuglunum róðurinn í snjónum og kuldanum. Við áttum nú ekki alveg allt sem

þurfti en lífræn kókosfeiti leist af palmín sem eru held ég bara ágæt skipti og svo tróðum við

rúsínum í könglana og veltum upp úr möndlum. Þetta er ágætis eftirréttur þegar búið er að narta í

brauðmolana sem við settum út fyrir þá líka.

 

 

 

Könglarnir festir upp í tré þar sem auðvelt er að tilla sér á grein og narta í þá

 

 

 

Fallegasta veður og logn þannig að tíu frostgráðurnar voru ekki alveg

bítandi kaldar

 

 

 

Ástþór Örn vel búinn dreif í að sópa svalirnar

 

 

 

 

      

 

Aðeins of kalt til að þessi pjakkalingur kæmist út! En loksins náðist smá bros á mynd

 

  

 

Mikið verið að spá og spekúlera!

 

 

 

Við vorum svo þrjú heima í dag í rólegheitum, Sigurður á námskeiði.

Ástþór Örn var ekkert að flýta sér í föt, en hann stingur yfirleitt alltaf upp á

því um helgar að dagarnir verði bara náttfatadagar!!

Verkefni dagsins var meðal annars að perla dreka í trúðaskóm og bleikri peysu.

 

 

  

 

Þessi litli strákur var mest megnis vakandi, en mig grunar að hann sé

að taka smá vaxtarkipp. Hann er þó ansi prúður, en hefur tekið

ansi stutta lúra og viljað næra sig voða oft

 

 

 

 

Og svo eru það gólfæfingarnar sívinsælu

 

 

 

Þá er nú notalegra að liggja á leikteppinu

 

 

 

 

Og drekinn tilbúinn og Ástþór Örn farinn úr náttfötunum í föt!

 

 

Mér þykir alltaf jafn skondið að það séu vasar á þessum litlu fötum

og mér þykir líka alltaf voða dúlló að sjá svona litlar manneskjur með hendur í vösum!

...já svona er ég kannski skrítin...ha ha!!!

 

 

Þessi herramaður bíður spenntur eftir bolludeginum og ætlar svo sannarlega að vakna fyrstur

á bolludagsmorgun á mánduag.