27. janúar
Við búin að eiga góða helgi. Þorrinn gekk jú í garð á föstudag og í tilefni bóndadagsins byrjaði dagurinn á morgunkaffi á leikskólanum þar sem öfum og pöbbum var boðið upp á flatbrauð, hangikjöt, slátur, hákarl og hafragraut!
Því miður sáu nú veðurguðirnir til þess að færri afar gátu mætt en ætlunin var, þar á meðal hann afi Ástþór sem var veðurtepptur í Langagerðinu. Það var svo Þorramatur í hádeginu hjá Ástþóri Erni og Sigurður Ágúst
á leiðinni á Þorrablót í vinnunni áður en langt um líður þannig að á föstudagskvöldið slepptum við Þorrakræsingum!! Á laugardaginn skruppum við svo í matarboð til afa og ömmu í Langagerðinu,
þar sem við fengum ansi góðan mat eins og venjulega. Arnaldur Kári var að koma í fyrsta skiptið í heimsókn í Langagerðið og dormaði nú mest allan tímann eða glápti út í lorfið, svona aðeins að reyna að átta sig á því hvar hann væri!
Í dag skruppu þeir Sigurður Ágúst, Ástþór Örn og afi Ástþór svo í bíó á Töfraprinsessuna...sem var víst alveg "ótrúlega skemmtileg" að mati Ástþórs Arnar. Fengum svo afa og ömmu í vöfflukaffi eftir bíó, ansi notalegt.
Eftir svona skemmtilega helgi eru náttúrlega fullt af myndum handa dyggum lesendum! Og takk fyrir kveðjurnar :o)

Á föstudaginn var ansi vetrarlegt og notalegt að geta bara verið inni. Ástþór Örn kom snemma heim
af leikskólanum og lét dekra við sig í tilefni bóndadagsins, sem hann var nokkuð upptekinn af!

Á leikskólanum búa krakkarnir alltaf til víkingahjálma til að hafa á Þorrablótinu.

Og stóra bróðurnum fannst ómögulegt að sá litli ætti ekki víkingahjálm. Hann dreif sig því í að föndra
einn handa honum og merkja með nafninu hans. (Sést ekki á myndinni, en ef víkingahjálmi Arnaldar Kára
er snúið við er hjálmurinn afmæliskóróna og aukl þess búið að skrifa nafnið hans stórum stöfum!).

Við Ástþór Örn prúðbúin að mæta í boðið í Langagerðið á laugardagskvöldið

Lítill Pálínustrákur!! Félagar í prjónafélaginu Pálínu eiga heiðurinn af húfunni og peysunni...
ég er ekki meðlimur í prjónafélaginu sem bjó til buxurnar og hef því ekki fleiri orð um þær :o)

Lítið sofandi epli!

Shrek mætti á svæðið hinn hressasti. Ástþór Örn var fljótur að taka niður grímuna og fullvissa okkur um að þetta
væri bara hann ef honum þótti við spila of vel með í Shrekleiknum!
Ástþór Örn varð alsæll þegar amma Kata færði honum búninginn þar sem hann var orðinn hræddur um
að allir öskudagsbúningar í búðunum væru að seljast upp.

Amma Kata með tvo ömmustráka
![]()
![]()

Arnaldur Kári er afskaplega hrifinn af þessum dreka sem Ólíver gaf honum í jólagjöf,
það er ekker kvartað á skiptiborðinu heldur hjalað eða rifist í drekanum á meðan skipt er um bleiu!

Aðeins kúrt!

Þarna sést held ég bara aðeins í spékopp! Arnaldur Kári er farinn að brosa svo fínt en sá eini sem fær bros
eftir pöntun er stóri bróðir. Erum búin að reyna að ná brosi á mynd til sönnunar þess hve drengurinn er að þroskast,
en það hefur nú ekki alveg tekist enn þá!!


Nýkominn úr baði!
![]()
![]()

Vöfflukaffi á sunnudegi

Shrek aftur kominn á kreik!

Við Ástþór Örn erum fullviss um að þessi bóndadagsblóm séu
hungangstúlipanar því þeir ilma svo vel!

Má svo til með að setja mynd af þessari fallegu mynd sem Ástþór Örn teiknaði í gær.
Eins og glöggir lesendur sjá er þetta hér inni í stofu hjá okkur og í stólnum situr Sigurður með Arnald Kára
og Ástþór Örn stendur þarna fyrir framan. Mér þykir ljósið sem hangir yfir borðstofuborðinu
einstaklega vel heppnað hjá honum.

Þessi strákur svaf af sér vöfflukaffi og heimsókn ömmu og afa

Dúllulegustu tásur í heiminum held ég bara

Og dúllulegustu bræður í heiminum!

Arnaldur Kári horfði bara hissa á mig þegar ég reyndi að fá hann til að sýna mér eitt bros

Og svo bara geispað í staðinn

Þessi strákur brosti bara eftir pöntun í staðinn!!

Endalausar gólfæfingar...
![]()
![]()

Ástþór Örn gladdist óskaplega þegar hann sá að páskaeggin eru farin
að sjást í búðunum. Hann fékk sér eitt af smæstu gerð en átti svo
erfitt með að trúa því að enn væri nú frekar langt í páskana!!

Við mæðgin aðeins að knúsast í gærkvöldi

Arnaldur Kári kominn í náttföt. Búinn að missa svolítið af fæðingarhárinu og
því ansi hárlaus á kollinum en með sítt að aftan!!

Sigurður Ágúst gerir brostilraun. Arnaldi Kára hlýtur að þykja þessar tilraunir
okkar við að mynda bros svolítið skemmtilegar því hann brosir gjarnan til
okkar þegar nýbúið er að slökkva á vélinni. En þetta kemur allt og
hann verður farinn að brosa að hverju "gú-gú-i" eftir smá tíma!!