29. desember
Vonum að þið séuð öll búin að hafa það gott yfir jólin og eigið góða daga svona í lok árs, sem hefur nú liðið ægilega hratt!

Ástþór Örn klár á jólaball með afa Ástþóri. Slaufan góða sem gjarnan er sett upp
við hátiðleg tækifæri er því miður ónýt en þá var nú gott að eiga drekabindi!
Það var ekki viðlit að fá þennan herramann til að hafa bindið innan undir vestinu :o)

Svo voru tekin nokkur spor og æfð jólalög áður en farið var á ballið!

Mættur á ballið!



Eftir jólaballið röltu þeir nafnar aðeins út á ísilagða tjörnina en hittu þessar svöngu gæsir á leiðinni.

Með Ráðhúsið í bakgrunni

Og svo Miðbæjarskólann og Iðnó, sem sjást nú varla í myrkrinu

Eins gott að sjást vel í myrkrinu!

Ástþór Örn er ansi ánægður með litla bróður og í dag hafði hann á orði að nú væri hann kominn með stór og falleg augu eins og hann sjálfur,
enda bjúgurinn að renna úr andlitinu í rólegheitum. Við foreldrarnir fáum aðeins að kenna á smá æsing stundum en það verða bara allir að fá
sinn tíma til að aðlagast! En þessi stóri bróðir er nú voða jákvæður og ánægður með þetta allt saman.

Amma Kata leit aðeins á okkur í dag og hitti á litla manninn vakandi.

Notalegt hjá okkur, heimagerður ís og eitt Múmínspil. Ástþór Örn fékk spilið í jólagjöf
frá Huga og Maríu í Svíþjóð og hefur okkur gengið vel að spila...vonum að við séum að skilja allt
rétt!! En þetta hitti vel í mark hjá okkur öllum, sem erum aðdáendur flestra íbúanna í Múmíndal.