25. desember
Gleðileg jól öll sömul! Nokkrar myndir, njótið vel :o)

Litli jólastrákurinn steinsofandi. Hann er ósköp vær og góður. Átti reyndar eitthvað furðulegan aðfangadag...
erfitt að vera bara nokkurra daga gamall og vera svona að átta sig á því hvað er að vera svangur, þreyttur og allt það!
En í dag hefur hann verið líkari sjálfum sér...eða svona eins og við höldum að hann sé enda erum við bara enn að kynnast þessum litla kút.

Og stærri jólastrákurinn kominn í jólafötin á aðfangadagskvöld.

Jólin gengið í garð og við að byrja að borða

Æ við mæðgin eitthvað að reyna að vera rosa sæt en þegar er búið að taka fullt af myndum sem manni er sagt að
hafi allar verið úr fókus er eitthvað lítið eftir af myndabrosi :o)

Feðgar á aðfangadagskvöldi. Það var svolítið erfitt að velja jólaföt á ófædda dúllu
en amma Kata færði litla kút voða falleg föt sem við Ástþór Örn komumst bara að í gær
að voru enn svolítið stór. Hann fór því í staðinn í þennan voðalega notalega galla sem amma Kata
hafði fært bumbunni fyrir svolitlu síðan. Við tókum svo upp pakka, borðuðum a'lamande (Ástþór Örn fékk möndlugjöfina!)
og höfðum það notalegt. Myndavélin var alveg úr gír því miður. Þeir bræður fengu heilmikið af fallegum gjöfum og
þökkum við óskaplega vel fyrir okkur (svona til þeirra sem eru að lesa en við höfum ekki heyrt í enn þá!).

Fyrsti náttfatadagurinn í dag, en við ætlum að eiga þá þó nokkra í jólafríinu

Ástþór Örn fékk þessa fínu octan bílaþvotta- og bensínstöð í jólagjöf
sem var sett saman í dag með smá hjálp


Litli herramaður svolítið íbygginn á svip!

Ástþór Örn stóri bróðir ansi upptekinn í tölvunni! Fékk leikinn Tumi og táknin frá
Adda, Sunnu og Róbert, en hún Sunna er einmitt annar höfundur leikjarins.
Og ekki má gleyma húfunni sem er svo falleg og hann fékk í jólagjöf frá Guðrúnu Láru.
Hefur varla viljað taka hana niður og ég hlakka til að sýna ykkur mynd af þeim litla með
sína dúllulegu húfu.
Vonum að þið hafið það öll sem best, njótið jólafrísins og farið varlega í vetrartíðinni