11. desember

 

 

 

Ekki hefur enn bæst við nýr fjölskyldumeðlimur! En allt fínt að frétta og við að undirbúa jólin í rólegheitum.

Ástþór Örn kominn í mikla jólastemmningu og stór dagur í dag þar sem Stekkjastaur mun mæta til byggða í nótt.

Í dag fór hann ásamt hóp af leikskólanum í safnahúsið hér í Kópavoginum þar sem var fræðst um jólaköttinn. Á morgun er svo piparkökubakstur og allt að verða

ansi jólalegt hjá þeim.

 

 

 

Í gær komum við Ástþór Örn við í föndurbúð og Ástþór Örn valdi sér smá handavinnu!

 

 

  

 

Einbeittur að mála sleða

 

 

Afgangsefnið notað í margt skemmtilegt og frumlegt

 

 

Afrakstur samvinnu okkar mæðgina í föndrinu!

 

 

 

Í dag skruppum við Ástþór Örn svo í jólaklippingu. Húfan náði þó að ýfa svolítið upp fínu klippinguna sýnist mér!

Nemó og Dóra, gullfiskarnir okkar eru þau hressustu og Ástþór Örn langar núna mest í stærra búr þar sem

hægt sé að koma fyrir gullkistu, litlum helli og þess háttar! Hann keypti nú handa þeim litla froskastyttu um daginn

sem hann er viss um að veiti þeim ómælda gleði.

 

 

 

 

Og ta ta...kúlumynd!

 

 

 

 

 

Og ein af feðgunum líka!