8. desember

 

 

 

Löngu kominn tími á uppfærslu! Margt búið að gerast og búið að vera nóg að gera síðan við áttum notalega hrekkjavökuhelgi í Dal fyrir rúmum mánuði!

Ástþór Örn er orðinn spenntur að verða stóri bróðir en annars eiga jólin hug hans allan! Við aðeins búin að skreyta og jólaundirbúningur að fara af stað á leikskólanum.

 

 

En ég hleypi myndunum að! Njótið vel og gleðilega aðventu.

 

 

 

Ástþór Örn er sérlegur áhugamaður um bókaturna og er nú einnig farinn að reyna fyrir sér í byggingu spilaborga!!

 

 

   

 

Ástþór Örn var búinn að bíða ansi lengi eftir að 1. desember gengi í garð með dagatölum og formlegri niðurtalningu til jóla!

1. desember komumst við mæðgin líka í jólaskap þegar við fórum með Vigdísi, Ólíver og Halla á Leitina að jólunum í Þjóðleikhúsinu,

skemmtum okkur konunglega. Í janúar er svo stefnt að því að fara á Gosa og Skilaboðaskjóðuna.

 

 

 

Síðasta föstudag var helgileikur leikskólans í Hjallakirkju.

Áður en helgileikurinn hófst bauð Ástþór Örn sig fram, ásamt tveimur

öðrum á Brekku sig fram til að tendra ljósin á nokkrum kertum.

 

 

 

Elstu krakkarnir koma fram í helgileiknum. Ég átti voðalega bágt með að trúa því

að þessir krakkar sem voru svo lítil þegar þau tóku á móti Ástþóri á deildinni Sunnu

í janúar 2005 væru orðin svona stór og á síðasta leikskólaárinu!

 

 

Ég á nú sundum ansi erfitt með að trúa því hvað þessi strákur minn er líka orðinn stór!

Eftir helgileikinn röltu krakkarnir aftur á leikskólann og borðuðu jólamat.

 

 

 

 

 

Herramaður á leið á jólaball leikskólans

 

 

Fékk að prufukeyra jólafötin!

 

 

 

Mikið fjör á jólaballi

 

 

Jólasveinarnir mættir til byggða

 

 

 

 

 

 

Ástþór Örn og Sigurður Arnar glaðir á jólaballi!

 

 

 

 

 

Og í vikunni var loksins komið að því að baka piparkökur!

 

 

 

 

 

 

Mjög einbeittur bakari

 

 

Og vandað sig við að skreyta

 

 

 

Gaf sér samt tíma til að brosa aðeins í myndavélina

 

 

 

Skreytt af kappi

 

 

 

 

 

 

 

 

Í vikunni komu amma Kata og afi Ástþór til okkar og útbúið var piparkökuhús

 

 

 

Hús Múmínálfanna í vetrarbúningi...Morrinn ógurlegi þarna búinn að hræða Múmínpabba út á ystu nöf!

 

 

Ástþór Örn skreytti uppáhaldið okkar, hann Snúð.

 

 

 

 

Hafið það öll sem best, við lofum að halda betur á spöðunum í uppfærslumálum