29. október - mánudagsfrí!

 

 

 

Frí á leikskólanum í dag vegna starfsdags. Við mæðgin áttum því rólegan morgun. Drifum okkur svo út um hálf ellefu og höfum verið að bardúsa margt ansi skemmtilegt í dag!

 

 

 

 

Í morgun heyrði ég Ástþór Örn allt í einu segja "kannski gefur jólasveinninn mér þreskivél?". Var þá að skoða þennan fína bækling þar sem hann sá ansi

margt sem kæmi sér vel í dráttarvélakassann góða!!

 

 

 

Þegar við vorum á leiðinni út hittum við hann Björn, vin Ástþórs Arnar sem býr hér rétt hjá. Lögð voru drög að því að fá Björn í heimsókn sem fyrst!

 

    

 

Komum við í Langagerðinu á leið okkar niður í bæ. Nú fer að styttast í að amma og afi snú aftur heim á klakann og Ástþór Örn orðinn spenntur að

fá þau í heimsókn til sín.

 

 

 

Eftir að hafa erindast svolítið í bænum skruppum við í Húsdýragarðinn,

sem kemur orðið sterkur inn á starfsdögum!! Í dag var þó fullt af gestum í garðinum

endan haustfrí víða.

 

 

 

Okkur Ástþóri Erni þykir alltaf ósköp vænt um þessa kvígu, enda vorum við fyrstu gestirnir sem sáum hana í vor!

 

 

 Þessi kálfur er svo glænýr og ein kvíga í fjósinu alveg að því komin að bera sýndist okkur

 

 

Og grísir í hrúgu. Við skildum ekkert í því þegar við vorum síðast, fyrir mánuði í Húsdýragarðinum að ein

gyltan hrein svo voðalega enda gaut hún nokkrum tímum síðar þessum grísum.

 

 

 

Ástþór Örn og hreindýrskálfur

 

 

 

Búið að opna Vísindatjaldið aftur, Ástþóri Erni til ómældrar gleði.

 

 

 

Leikið úti

 

 

Hittum aðeins kisu, sem hélt sig þó meira til hlés núna en síðast - enda mikill hávaði í öllum þessum krakkaskara sem var í heimsókn

hjá henni í dag.

 

 

 

 

 

Hlaupið á hálum stígnum...andartaki síðar rann þessi strákur líka eftir maganum eftir honum!

 

 

 

Önnur kisa sem á heima í garðinum á vaktinni í miðasölunni

 

 

 

Leikið hér fyrir utan áður en við drifum okkur inn í síðbúið hádegissnarl

 

 

 

 

Úti orðið ansi vetrarlegt...ætli það fari svo ekki að rigna aftur á morgun?!

 

 

 

Slappað af og horft á eina mynd svona úr því það er nú frídagur!

 

 

 

Ég er að hugsa um að hvíla skólabækurnar og vera bara í fríi áfram líka í dag og klára húfu sem ég er að prjóna

í stíl við þessa peysu (sem reyndar á eftir að festa tölur á) og sokka. Er svo komin með garn í sokka á

Ástþór Örn líka...það má því alveg vera pínu kalt á næstunni!!!