27. október
Enn ein vikan liðin og kærkomið helgarfrí gengið í garð. Ástþór Örn er svo í fríi á mánudaginn vegna starfsdags á leikskólanum. Þá ætlum við mæðgin að eiga notalegan dag og vonandi að veður leyfi smá útiveru!!
Í dag fór Ástþór Örn í íþróttaskólann og skemmti sér vel eins og venjulega. Tekur þar hlutina af alvöru og er duglegur að fylgja fyrirmælum og skilur ekkert í krökkunum sem ekki nenna að gera allar æfingarnar og svona.
Þar sem veðrið var ágætt freistuðumst við til þess að skreppa út og fórum aðeins í Laugardalinn með hjólið. Sigurður tók sér smá vinnupásu til að fara með okkur út í góða veðrið meira að segja! Ástþór Örn náði að hjóla alveg í svona tíu mínútur kannski áður en við urðum að hlaupa í bílinn þar sem það var svo mikil slyddurigning!!! Það var því ekkert annað að gera en að hraða sér heim og útbúa heitt kakó til að ná úr okkur hrollinum.

Ég hef átt í mesta basli með myndavélina sem við fengum okkur í vor þar sem hún er eiginlega úr leik um leið og aðeins fer að rökkva.
Það heppnast því voða fáar myndir eftir klukkan svona fimm á daginn!! En í gærkvöldi náði ég nokkrum þokkalegum þegar við Ástþór Örn vorum að spila.
Byrjuðum á hinu sívinsæla spili Gettu hver?

Svo var farið í Fjölskylduspilið stórskemmtilega! Ástþór Örn reyndar voðalega fúll yfir að mega ekki velja sér ákveðin spil í byrjun,
þar sem nokkur spil eru í meira uppáhaldi en önnur.

En var fljótur að taka gleði sína á ný þegar hann uppgötvaði að hann hafði dregið sér sitt uppáhaldsspil!!

Og við enduðum svo á einu hundaspili

Ástþór Örn spilakóngur sem vann mig í öllum spilunum

Á fullri ferð í Laugardalnum í dag


Og kominn með heitt kakó í bolla eftir að hafa lent í úrhellisrigningunni eða slyddunni í hjólatúrnum

Og Ástþór Örn reitti af sér brandarana yfir kakóbollanum þannig að hrollurinn var fljótur að renna úr okkur :o)

Og það hefur gengið vonum framar að halda "nýja" herberginu ansi fínu, enda miklu auðveldara að taka til en áður.
Ástþór Örn situr svo nánast öllum stundum við skrifborðið, æfir stafina og teiknar.