21. október
Eitthvað höfum við verið löt að uppfæra síðuna okkar. Förum vonandi að bæta úr því og setja inn skemmtilegar myndir!
Helgin hefur verið undirlögð í framkvæmdum, en við drifum loks í því að taka herbergi Ástþórs Arnar í gegn. Það var svona komið á það stig að erfitt var að taka til, skáparnir allir orðnir
draslskápar og skúffur og svo framvegis!
Sjálfur átt hann sér tvær óskir, fá málað gult og skrifborð. Nú er búið að verða við þessum óskum og vonandi að það verði auðveldara að halda öllu í skorðum!!!

Á föstudaginn var herbergið næstum tæmt og veggirnir sparslaðir og pússaðir!

Íbúðin á "floti" í leikföngum og alls konar dóti

Sestur við nýja skrifborðið í annars ansi tómu herbergi!

Ástþór Örn er nokkuð duglegur að æfa stafina og þykir skemmtilegt að herma eftir því sem stendur hér og þar.
Þetta sá ég í dag hér í miðjum framkvæmdum!! S-ið er nú hálf einmana samt sýnist mér!!

Ástþór Örn setur upp myndasvipinn :o)

Nú hefur borðstofuborðið í stofunni vonandi lokið starfi sínu sem vinnuborð Ástþórs Arnar!

Eins og í öllum stórtiltektum var dustað rykið af hinu og þessu sem ekki hafði verið leikið með lengi.
Já og við fundum líka inniskó sem Ástþór Örn hafði alltaf með sér þegar hann byrjaði á leikskólanum!
Mér þykir það óhugsandi að þessi stóri strákur minn hafi nú ekki fyrir svo löngu verið svona ægilega lítill að byrja á
leikskólanum í þessum adidas töfflum!!!

Og ein af okkur mæðginum

Og önnur...þar sem Ástþór Örn fyrirskipaði að við ættum að vera "alveg eins sæt og við gætum"!!!

Að komast mynd á þetta allt saman

Hæstánægður með breytingarnar, sem koma bara nokkuð vel út


Finnst ykkur þetta ekki fínt?! Verst að leskrókurinn sést ekki á myndinni!