6. október
Kominn október! Aldeilis að tíminn líður hratt. Búið að vera nóg að gera hjá öllum í vikunni og við voða glöð að fá helgarfrí.
Ástþór Örn byrjaði í íþróttaskólanum í dag en hann er búinn að bíða spenntur eftir fyrsta tímanum og spurt okkur nánast á hverjum degi hvenær hann fari nú eiginlega í íþróttaskólann!
Hann skemmti hann sér mjög vel, þó hann hafi kvartað mjög undan því að hafa verið látinn æfa kollhnís aftur á bak!! Meira fyrir að fá að vera að klifra og hlaupa.
Fórum svo aðeins út í góða veðrið...enda loksins hætt að rigna!

Á fimmtudagskvöldið rétt áður en Ástþór Örn átti að fara að sofa hringdi dyrabjallan og var þar pósturinn mættur með
pakka til Ástþórs Arnar frá afa og ömmu í Tyrklandi.

Upp úr pakkanum kom alls konar skemmtilegt dót, meðal annars stórvinkonan Dóra landkönnuður, tvær styttur í soldánasafnið, límmiðar, grísk satírahorn og alls konar!

Já og þessi fíni bolur, sem Ástþór Örn fór að sjálfsögðu í á leikskólann á föstudag við mikinn fögnuð vina sinna þar! Þegar hann fór á leikskólann
um morguninn í bolnum og með Dóru bað hann mig að lofa því að ef að það kæmu gestir á meðan hann væri á leikskólanum mættu þeir alls
ekki leika með límmiðana eða hitt dótið.
Ég sótti Ástþór Örn snemma á föstudaginn og bökuðum við hrísgrjónaklatta í kaffitímanum...synd að amma Kata
hafi ekki getað mætt í kaffið.

Ástþór Örn stillir sér upp!

"...mamma, taktu eina magapínumynd líka" bað Ástþór Örn mig!!!

Í dag tókum við mæðgin okkur til og sópuðum svolítið af laufum saman en þau hafa haldist illa á trjánum í rokinu og rigningunni undan farið

Sætur strákur í haustsólinni

Síðasta hansarós haustsins (?) glöð að fá smá sól á sig líka



Eftir ansi marga rigningardaga var ansi gaman að fá fallegan og sólríkan haustdag

Fjörkálfur að róla!

...stundum ansi stut í smá fíflagang :o)
Hafið það gott um helgina! Og takk fyrir kveðjurnar í gestabókina.