28. september
Starfsdagur á leikskólanum í dag þannig að Ástþór Örn hóf helgarfríið sitt í gær, við mikinn fögnuð. Hann er voða ánægður á leikskólanum en þykir helgarfríin óskaplega skemmtileg og reynir held ég um það bil alltaf að herja út aukafrídag með engum árangri!!
Vorum hér heima í morgun, ég að lesa um leið og Ástþór Örn draslaði meira en ég hélt að væri mögulegt í herberginu sínu. Við skiptum svo með okkur verkum, hann reyndi að taka til hjá sér á meðan ég ruskaði til annars staðar. Ég man svo vel eftir því þegar ég átti sjálf að taka til...en bara alltaf áður en ég vissi af var ég farin að leika, búin að finna eitthvað sem ég hélt að væri týnt og svo framvegis. Þannig vað þetta einmitt í morgun. Jú eitthvað dót var svona fært aðeins til en svo var Ástþór Örn aðallega að koma fram til að sjá hvernig gengi hjá mér, en ég held að hann hafi búist við því að ég væri í svipaðri stöðu og ekkert gengi!! En eftir að hann hafði tekið svolítið til...og ég líka vorum við komin með farmiða í Húsdýragarðinn að launum. Þar vorum við einu gestirnir og Ástþór Örn vildi helst vera þar í allan dag og þá helst að leika við kisuna sem býr í garðinum og varð ógurlega glöð að fá svolitla athygli!

Enn hangir nú eitthvað af laufum á trjánum eftir allt rokið, en orðið enn haustlegra í
Laugardalnum en þegar við vorum þar fyrir nokkrum dögum engu að síður.


Fylgst með selunum

Áhugi Ástþórs Arnar á kisum fer síst minnkandi og minn ljómaði alveg í dag þegar heyrðist mjálmað í fjósinu!!


Þarna hefði hann getað verið í allan dag að knúsa og klappa kisunni!!

Gyltan alveg steinsofandi!!

Litla kvígan sem við sáum alveg glænýja í vor hefur stækkað vel

Ástþóri Erni hefur þótt mjög spennandi að fara í Vísindatjaldið í garðinum. Sædýrasafnið þar vakið mikla lukku.
En núna er tjaldið lokað vegna endurbóta og var Ástþór Örn ekkert allt of sæll með það. Hann gat þó huggað sig við
að eitthvað af sjávardýrunum voru komin í búr utan dyra.

Við komumst að því að þessi hvíti refur sem á heima í Húsdýragarðinum er ákaflega skapstyggur þó
hann líti kannski ekki út fyrir það á þessari mynd! Þegar ég hafði smellt af kom hann stökkvandi, stökk á girðinguna og
hvæsti og urraði.

Ástþór Örn að fara þriðju ferðina í fjósið til að hitta kisu!

Góða helgi! Hafið það gott.