23. september

 

 

Við mæðgin að stíga upp úr kvefpest. Ástþór Örn var reyndar ekki svo lengi að hrista hana af sér, en var þó heima þrjá daga í vikunni til að fara nú ekki of snemma af stað. En ég ætla að vera lengi að ná þessu almennilega úr mér.

Við mæðgin vorum því bara í rólegheitum hér heima í nokkra daga. Horfðum á nokkrar skemmtilegar myndir, spiluðum og fleira. Ástþór Örn tók líka ágæta rispu í að æfa stafina og sat líka við og æfði sig að teikna sjávardýr!!

Í gær skruppum við svo í afmæli til hennar  Maríu Kristínar frænku okkar, sem varð sjö ára 21. september. Mikið fjör og Ástþór Örn fékkst ekki til að fara að koma sér heim fyrr en undir kvöldmat.

Í morgun var eitt það fyrsta sem hann spurði mig hvort það væri enginn sem ætti afmæli í dag sem við þekktum!! Áttum hér rólegan morgun en drifum okkur svo aðeins út í vindinn.

Röltum aðeins í Laugardalnum, gáfum fuglunum nokkra brauðmola og röltum um grasagarðinn.

 

 

 

Ástþór Örn á leiðinni í afmælið í gær. Hann vill ansi oft vera með þessa rauðu

þverslaufu þegar hann fer í afmæli eða önnur boð og hef ég ekkert verið að

benda á að hún passi kannski ekkert alltaf við...er ekki um að gera að virða frumkvæði

og sjálfstæði þessa unga herramanns í þessum efnum?!

 

 

 

Í Laugardalnum í dag

 

 

 

Þetta andapar hafði sig nú lítið í frammi en biðu bara róleg eftir brauðmola!

 

 

 

 

Brauði hent með miklum tilþrifum!

 

 

    

 

Falleg haustber. Við vorum sérlega forvitin að vita eitthvað meira um Blárifsið, lengst til hægri!

 

 

Ef ég ætti garð myndi mig langa í einmitt þetta fallega rósatré. Held að ávöxturinn af því

passi líka alveg ljómandi vel í epla- og rósamarmelaði!

 

 

 

Ástþór Örn um það bil að hræða líftóruna úr aumingjans gæs með því að fá hana í eltingaleik

 

 

 

 

 

Ástþór Örn varð nú fyrir svolitlum vonbrigðum þegar við fórum á okkar aðalblómaslóðir í garðinum sem við skoðuðum

oft í sumar. Þar var allt að verða ansi fölleitt og býflugurnar löngu horfnar!

 

 

Haustlægðirnar hafa ekki alveg náð að slíta öll fallegu laufin af trjánum!