Loksins nokkrar haustmyndir!

Eitthvað er nú langt síðan hefur verið uppfært hér! Fólk vonandi ekki farið að hafa áhyggjur af okkur. En við höfum haft það ljómandi gott. Allir komnir í sína haustrútínu sem hefur farið vel af stað hjá okkur öllum.
Ástþór Örn búinn að vera í skemmtilegum hauststörfum á leikskólanum, í byrjun september kom hann heim með sól-og rifsberjagel og í vikunni voru teknar upp kartöflur!
Í gær skruppum við svo í sveitina. Þar var því miður nánast ekkert hægt að vera úti...en við sem erum hvert öðru þrjóskari reyndum þó að fara svolítið út. Í dag var svo ekki nema 3° C og rok þannig að
við gátum ekki verið mikið úti. Vorum því ekkert sein í bæinn en vonumst nú til þess að komast sem fyrst aftur vestur og geta þá verið meira úti og vonast eftir því að Kuldaboli verði bara annars staðar!
Ástþór Örn spáir annars mikið í væntanlegt hlutverk sem stóri bróðir. Er að ræða hitt og þetta hér heima og á leikskólanum. Hann er alveg klár á því að von sé á lítilli systur, þó hann hafi nú líka tekið það fram
að hann yrði alveg jafn glaður að fá bróður. Um daginn þegar við skruppum í IKEA sá ég að hann stoppaði lengi við básinn og var að skoða kojur. Tjáði mér það að þetta væri náttúrlega það eina rétta þegar börnin yrðu orðin tvö.
Myndaalbúmin með myndum af honum pínulitlum eru einnig mikið skoðuð. Hann trúir nú bara varla að hann hafi verið svona lítill...og við eigum bara bágt með að trúa því líka!! Í dag var hann að skoða myndaalbúm og kom auga á
mynd sem var tekin af honum og Haraldi Daða í mars 2003 í Danmörku. Þá sagði Ástþór Örn "nei sjáðu, hér er hann Haraladur Daði þegar hann var alveg eld-,eld-,eldlítill"...saman ber eldgamall!! Enn nokkrir mánuðir í að fjölskyldan stækki og ágætt að geta rætt þetta svolítið fram og aftur :o)
Vonandi að við verðum svo með fullt af myndum í viðbót áður en langt um líður, hafið það öll gott og sérstakar kveðjur til ykkar sem eruð svona dugleg að setja inn kveðjur til okkur í Gestabókina.

Á föstudaginn kom Ólíver í heimsókn til okkar. Við frændsystkinin röltum saman á leikskólann og sóttum Ástþór Örn,
sem varð ógurlega montinn að fá uppáhaldsfrænda sinn að sækja sig! Þeir léku sér svo hér og að sjálfsögðu voru búningarnir dregnir fram.

Mættur í sveitina. Drifum okkur strax og heilsuðum upp á klárana fjóra

Þeir urðu ógurlega glaðir að sjá okkur og við ekki síður glöð að hitta þá


Hrafn og Frakkur hnusa svolítið af Ástþóri Erni...voru sérstaklega spenntir fyrir þessum dúskum á húfunni hans!

Ástþór Örn hafði ýmislegt að segja honum Frakk stórvini sínum

Allt að færast í haustbúning í sveitinni og hrossin strax orðin svolítið loðin, enda haustið borið bratt að.

Vindurinn datt aðeins niður í gær og notuðum við tækifærið og spiluðum krokket

Tilþrifin voru mikil þegar reynt var að koma kúlunum á rétta staði!

Og ef þær lentu ekki alveg á réttum stöðum átti Ástþór Örn það nú til að hagræða þeim aðeins


Sveitin og sveitastrákurinn að færast í haustbúning!


Á þessum tímapunkti vissi ég ekki hvort ég öfundaði meira, Ástþór Örn af húfunni og kuldagallanum eða Pílu af feldinum!!

Það var því ósköp notalegt að komast bara inn aftur. Ástþór Örn að teikna í rólegheitum

Mín mynd var af voðalega fallegu fjalli bleiki að innan, himni og sól en Sigurður fékk mynda f þessari
voðalega sætu drekafjölskyldu!

Þegar við komum heim ákváðum við mæðgin að drífa okkur í að baka pönnukökur...
og ráðast þar inn á verksvið Sigurðar!

Pönnsurnar heppnuðust vel, þó að staða pönnukökumeistarans á heimilinu hafi nú ekkert verið breytt
samt sem áður.

Ástþór Örn í nýrri peysu....sem hvorki meira né minna en ég prjónaði!
Ég rifjaði upp prjóneríið þegar ég var hjá Guðrúnu Láru um daginn og hef bara verið óstöðvandi síðan
og er að prjóna aðra peysu á drenginn. Ólíver var svo náttúrlega ógurlega hrifinn af þessum
myndarskap um leið og hann hafði áhyggjur af því að enginn væri að prjóna á hann.
Ég lofaði honum því að ég myndi kippa því í liðinn sem allra, allra fyrst!
![]()