Fyrsti dagur sumars í pollabuxum og síðustu dagarnir í sumarfríi!

 

 

 

                    Við búin að eiga mjög góða daga í Dal og hefðum nú öll getað hugsað okkur að vera bara töluvert lengur! En ég verð að sannfæra mig um það sama og ég hef reynt að sannfæra Ástþór Örn um,

að það sé ekki hægt að vera endalaust í sumarfríi. Mitt frí er reyndar ekki alveg búið, því ég ætla að bregða undir mig betri fætinum og skreppa til Guðrúnar Láru og fjölskyldu um miðja viku.

En á laugardaginn komu afi og amma heim, hress og kát með sína ferð en glöð að koma í sveitina. Áttum stuttan en góðan tíma með þeim áður en við héldum til

borgarinnar í gær. Hér eru myndir helgarinnar!

 

 

 

 

Ástþór Örn fór í fyrsta skiptið í allt sumar í pollabuxum út að leika föstudaginn 24. ágúst!

 

 

 

Og pollarnir voru vel nýttir

 

 

 

Píla var nokkuð áhugasöm líka...enda ekki séð svona mikið vatn í pollum í allt sumar!!!

 

 

 

Ástþór Örn að tína peningablóm!

 

 

Fór að heilsa upp á hrossin, með dágóðan peningablómvönd í hendinni. Hann Krummi var ansi spenntur að fá að smakka á vendinum

og hljóm Ástþór Örn skellihlæjandi undan honum!

 

 

 

 

 

 

 

 

Ástþór Örn ákvað nú að leyfa honum að smakka svolítið úr vendinum og við sáum ekki betur en að Hrafni líkaði vel

 

 

 

Endaði svo bara á því að peningablómin hvarf svo bara allur ofan í hann!!

 

 

 

Ástþór Örn safnar ekki bara fræjum úr peningablómum í sveitinni heldur líka "demöntum" sem hann finnur þarna um allt.

Myndabrosið er enn sett upp við hátíðleg tækifæri!

 

 

 

 

Demantabóndinn í Dal! Ég fann þarna voða fallega steina og færði Ástþóri Erni með þeim orðum að hér væru fleiri

demantar í safnið. Hann leit á þá og sagði svo "nei mamma mín, þetta eru nú bara minjagripir"!!!!

 

 

 

Hópmynd í lok sumars

 

 

 

Ástþór Örn dreif sig á hestbak í gær og eins og venjulega var spjallað heilmikið við Frakk.

Í stuttu máli var þetta spjall eins og flest önnur, um það hvað Ástþóri Erni þætti vænt um hann Frakk sinn, hvað hann væri

rosalega fallegur og svo framvegis. Endaði svo á að smella á hann kossi!

 

 

 

Það gekk vel á hestbaki enda held ég að það yrði að leita lengi að öðrum eins ljúflingi og honum Frakk.

Sem hentar fullkomlega fjögurra ára knapa jafnt sem eldri og reyndari!

 

 

 

Sigurður og afi Ástþór fóru líka á bak og drifu sig í útreiðartúr. Hér tóku þeir fyrst nokkra

hringi saman í gerðinu. Ég teymdi svo Ástþór Örn góðan spotta fyrir utan gerðið svona aðeins

til að æfa hann betur í að sitja í hnakknum. Allt svo slétt og fellt í gerðinu að það er líka góð æfing að

rölta rólega fyrir utan!

 

 

Þeir nafnar voru strax farnir að leggja drögin að ferð þeirra þriggja langt út fyrir gerðið á næstu árum!

 

 

 

 

Rölt heim í Dal

 

 

 

Ástþór Örn reyndi í gær að sannfæra mig um það að það væri mjög sniðug hugmynd að sækja um lengra sumarfrí!

En eftir smá spjall sá hann að það væri bara alveg jafn erfitt að fara úr sveitinni sama hvað fríið væri langt.

Í morgun fór hann hinn hressasti á leikskólann, spenntur að hitta alla krakkana. Hann var varla kominn inn úr

dyrunum þegar hann var farinn að segja miklar hetjusögur af sjálfum sér og honum Frakk stórvini sínum úr sveitinni!

Ég hugsaði með mér að ég hefði sjálfsagt ekki alveg getað mætt í skólann, nú eða á bókasafnið svona ægilega glöð í bragði á

fyrsta degi eftir sumarfrí :o)