Berjamó, fjöruferð og almenn sveitastörf!
![]()
Þá er langt liðið á frívikuna okkar hér í sveitinni. Gengið vel að gæta að öllu hér á meðan amma og afi hafa víst verið að stikna í Tyrklandi! Þrátt fyrir það að veðrið sé nú ekki búið að vera allt of skemmtilegt
þessa vikuna höfum við verið mikið úti við. En þess á milli höfum við haft það notalegt inni, bakað sumarpiparkökur, teiknað, sultað, bakað svolítið meira og alls konar!
Og svo viljum við nota tækifærið og senda henni Láru Dís frænku okkar stórt afmælisknús í tilefni gærdagsins, vonum að þú hafir átt góðan dag.

Í byrjun vikunnar notuðum við tækifærið áður en færi að rigna og fórum í berjamó

Fundum svolítið af bláberjum. Okkur sýnist á þessum ferðum okkar um móana að krækiberjatíð sé afleit, líklegast búið að vera allt of þurrt.
Svolítið er af bláberjum en prýðilegt aðalbláberjaár

Sigurður tínir og tínir!

Ástþór Örn var prýðisgóður smakkari og tók bragðprufur, enda nauðsynlegt að vita að uppskeran sé í lagi

Svo var soðið í sultu. Annars vegar bjó ég til hefðbundna bláberjasultu og hins vegar sultu með bláberjum, melónu- og eplabitum

Hluti afraksturs sultugerðarinnar. Það sem fór í krukkurnar ilmaði voðalega vel, vonum að bragðið sé eins gott :o)

Þeir feðgar að moka undan hrossunum. Ástþór Örn rekur okkur hikstalaust áfram, enda voða duglegur við sveitastörfin

Ástþór Örn brynnir hrossunum

Og Frakkur faðmaður í bak og fyrir. Ástþór Örn var alveg viss um að þarna hefði Frakkur faðmað hann á móti!
Það má vel vera að hann sé farinn að læra þetta, enda faðmaður óskaplega oft


Þeir feðgar hafa staðið í stórræðum í fjárhúsunum alla vikuna og verið að moka út og undirbúa það fyrir komu íbúa hússins af fjalli!

En þegar fór að rigna var nú ástæða til að eiga góða stund innan dyra, skera út og baka sumarpiparkökur!

Ástþór Örn er jafnvel sætari bakarastrákur en sveitastrákur!!

Kökurnar brögðuðust mjög vel...og við skiljum ekkert í því en þær eru bara næstum allar horfnar

Í gær rigndi svolítið en á milli skúra kom fínasta veður og notuðum við eina góðviðrislotuna í að heilsa upp á merarnar
og folöldin hér á flötunum fyrir neaðn

Þessi dúlla var voða feimin og faldi sig bara á bak við mömmu sína

En Merkur okkar var ekkert feiminn og heilsaði upp á okkur

Og hér er hann með mömmu sinni, henni Gígju

Og hér er hann Neisti, sem er eins vetra. Hann kom í Dal í vor, og fékk að
vera á flötunum með þessum mömmuhóp þar sem honum var heldur harkalega tekið af "unglingunum"
okkar sem eru í öðru hólfi.

Allir ólmir í að fá smá mola

Þetta folald var ekkert á því að koma nær, stóð bara þarna og reyndi að fá mömmu sína til sín með því að hneggja hátt og snjallt!

Það var ágætt að fá svolitla rigningu loksins...Ástþór Örn gladdist voðalega yfir pollunum


Í dag hefur verið þungbúið og ansi mikið rok

Ástþór Örn var því hluta úr degi inni að leika og teiknaði meðal annars nokkrar ansi fínar myndir.

Til dæmis teiknaði hann þessa flottu mynd af honum Frakk!

Seinni partinn ákváðum við nú að drífa okkur aðeins út og ákváðum að kíkja aðeins í fjöruna

Það var ekki svo mikið rok í fjörunni en þó nokkur öldugangur, sem gerði ferðina bara skemmtilegri!

Sigurður undir regnboga

Í dag voru alvöru öldur sem þurfti að hlaupa hratt undan...nú eða fá smá sjó í stígvélin!

Ástþór Örn fékk nú ekkert að fara þarna einn of langt en var í öruggum höndum og þótti þetta öldubrölt óskaplega skemmtilegt og spennandi



Ástþór Örn með bláber og rjóma í eftirrétt í kvöld