Frændur í sveit
![]()
Við komin aftur í sveitina og um helgina verður Ólíver með okkur. Þeir frændur eru búnir að skemmta sér stórvel í dag enda dagskráin bara nokkuð góð! Veðrið hefur verið gott í dag, við ekkert verið að láta smá gjólu á okkur fá.
Og að sjálfsögðu tókum við fullt af myndum!

Komnir í náttfötin í gærkvöldi með þyrlurnar fínu sem Ólíver kom með og voru prófaðar með góðum árangri um leið og rennt var í hlað í gær

Í morgun gátu þeir frændur ekki beðið eftir að komast á hestbak

Ólíver tók sig vel út á Hrafni

Ástþóri Erni gengur vel að æfa taumhaldið. Samvinna þeirra Frakks ansi góð

Og á meðan Ástþór Örn æfði sig í gerðinu dreif Sigurður Ágúst sig í smá ferð á Létti

Þeir feðgar fóru svo nokkra hringi saman í gerðinu


Píla fylgdist vel með öllu saman

Búið að fara á hestbak og beðið eftir Sigurði, Frakk og Pílu!

Svolítið vindbarin mæðgin!

Þarna komu þau svo loksins. Píla orðin svolítið þreytt og dróst svolítið aftur úr...en hún tók þátt í ævintýri fyrr um daginn sem hófst á því að nokkrar
kindur voru reknar héðan úr hlaðinu. Endaði svo með því að Tryna missti sig svolítið eftir að hafa staðið sig ágætlega í smölun og láta elta sig nánast upp að Seljafjalli.
Sigurður Ágúst, Píla og Trýna komu öll frekar þreytt heim...kindurnar hafa reyndar ekki sést aftur.

Eftir að hafa fengið smá kennslu í að þekkja hundasúrur frá njólum hófst mikil hundasúruveisla hjá þeim Ólíver og Ástþóri Erni

Hundasúrurnar reyndust hið besta laugardagsnammi!


Eftir hádegismat skruppum við í fjöruna "okkar". Á leiðinni var Ástþór Örn að lýsa staðnum fyrir frænda sínum og sagði honum
að þar væri ekki bara sjór heldur líka "frábær lækur". Þeir byrjuðu því að sjálfsögðu leikinn við hinn frábæra læk.

Fórum svo í alvöru fjöruna líka





Þegar okkur var farið að líða eins og við værum alveg ein í heiminum birtust þessir ferðalangar

Sigurður lætur sig dreyma um fjöruferð á hestbaki

Kríurnar voru nú alveg jafn geðstirðar og þegar við heimsóttum þær síðast

Ólíver með jökulinn í baksýn

Þeir frændur skemmtu sér konunglega í fjöruferðinni

Og mér þykja fjöruferðir alltaf jafn skemmtilegar!


Spennan var magnþrungin þegar þeir frændur léku sér svolítið að öldunum...eins gott að fara varlega


Vissara að vera fljótur að forða sér!


Ástþór Örn teiknaði kolkrabba í sandinn

Tilveran varð ansi erfið hjá þessum unga herramanni þegar átti að halda heim úr fjörunni

En hann hafði sem betur fer komist yfir þetta fjöruáfall þegar í Dal var komið

Leikið í heimatilbúinni rennibraut


Sigurður Ágúst tók sig til og bakaði pönnsur í kaffinu. Það var voðalega notalegt að setjast og fá sér kaffisopa og pönnuköku
eftir alla útiveruna!
