Dalur í byrjun ágúst

 

 

 

Af norðurlandinu fórum við á Snæfellsnesið. Búið að vera fínasta veður og við verið mikið úti. Í dag var þó svolítið mikið rok og við því verið mest megnis inni. Skruppum þó í Stykkishólm í sund!

 

 

 

Ég skrapp í veiði á miðvikudagsmorguninn og fékk þrjá laxa (missti svo reyndar aðra þrjá!) og þennan litla sjóbirting.

Ástþór Örn berjablái hjálpaði til við að mæla!

 

 

 

 

Á miðvikudagskvöldið grilluðum við okkur svo pylsur á veröndinni hjá ömmu í veiðihúsinu.

 

 

 

Og eftir grill brugðu þeir herramenn sér svo í kerið í góða veðrinu. Gauti og Arnaldur eru búnir að vera í sveitinni,

Ástþóri Erni til ómældrar ánægju!

 

 

 

Við skruppum í berjamó og erum núna orðin spennt að fara aftur þegar berin verða orðin alveg tilbúin

 

 

 

 

 

   

 

 

 

 

 

 

Ástþór Örn klár að fara á bak

 

 

 

 

Gekk voða vel hjá þessum litla knapa sem æfði sig að beygja af miklum móð!

 

 

 

 

 

 

Sigurður dreif sig líka á hestbak

 

 

 

Fórum í fjöruferð í góða veðrinu. Við Ástþór Örn stefnum að því að skreppa í aðra ferð í fjöruna um helgina ef veður leyfir -

en þá verður Sigurður að veiða

 

 

 

Gaman að elta öldurnar

 

 

en það getur verið vissara að hlaupa hratt undan þeim líka!

 

 

 

Okkur mæðginum þótti svolítið erfitt að koma vel út á mynd með sólina í augun!

 

 

 

Sandlóa að leika sér í fjöuborðinu

 

 

Og þarna til vinstri sést tjaldur rölta um fjöruna

 

 

En kríunum leist ekkert allt of vel á það hann væri þarna á vappinu of nálægt þeirra byggð og reyndu að koma honum í burtu,

en hann gaf nú ekkert eftir!

 

 

Kríurnar varar um sig og var ekkert gefið um að við kæmum of nálægt þeim

 

 

 

 

Enda nóg pláss fyrir alla þarna í fjörunni og við reyndum bara að angra þær sem minnst!!

 

 

 

 

 

Vonum að þið eigið góða helgi fram undan! Við sendum góðar kveðjur úr sveitinni