Norðurferð í lok júlí

 

 

Skruppum norður í lok júlí. Komum norður 27. og lentum í afmælisboði sem var haldið fyrir afa Örn. Á laugardeginum fórum við í fermingu Margrétar frænku þeirra feðga og skemmti Ástþór Örn sér konunglega í veislunni. Áttum svo rólegan dag á Akureyri á sunnudag og drifum okkur upp í Mývatnssveit á mánudaginn. Vorum heppin með veður og áttum þar mjög góðan dag. Og að sjálfsögðu voru teknar nokkrar myndir!

 

 

 

Ástþór Örn með hrekkjasvip á kaffihúsi að knúsa nú eða um það bil að fara að kremja Sigurð

 

 

Við mæðgin fyrir utan Akureyrarkirkju

 

 

Og þeir feðgar sestir inn...Ástþór Örn mátti varla vera að því að setja upp myndasvipinn um leið og hann fylgdist með þeim sem komu til kirkjunnar!

 

 

Sr. afi Örn fermdi Margréti

 

 

 

Og Maddý systir ömmu Hillu söng og Bibba systir afa Arnar lék á píanóið

 

 

Ástþór Örn fékk að kveikja á einu kerti

 

Eitthvað var myndavélin langt ofan í tösku í veislunni sjálfri. Ástþór Örn spurði okkur nú reyndar þegar við komum út í bíl úr kirkjunni hvort það hefði ekki átt að vera kaka!!

Og köku fékk hann og meira til í veislunni seinna um daginn.

 

 

Á sunnudeginum skruppum við einnn Eyjafjarðarhring, komum við á sveitamarkaði og að sjálfsögðu líka í jólahúsinu!

 

 

  

 

 

Klifrað á lakkrísmola!

 

 

 

Uppgefinn strákur sem var ekki lengi að sofna að kvöldi sunnudagsins! Fékk að hlusta á nokkur ævintýri og náði held ég kannski þremur mínútum.

 

 

 

Á mánudag drifum við okkur í Mývatnssveitina. Þar byrjuðum við á því að kíkja í Námaskarð

 

 

 

Ástþór Örn og Sigurður á pallinum góða sem við smíðuðum í landvörslunni 1998

 

 

 

Ástþóri Erni þótti mikil kvöl og pína að vera þarna í hveralyktinni og var sko ekkert til í að brosa fyrir myndavélina

 

 

 

 

 

 

 

 

Heldur brattari var hann í Dimmuborgum, þar sem hann skemmti sér konunglega!

 

 

 

 

 

Í Dimmuborgum sáum við nokkur tröll sem höfðu greinilega verið á ferðinni í dagsbirtu og orðið að steini

 

 

 

 

 

Ástþór Örn við kirkjuna í Dimmuborgum

 

 

 

 

 

    

 

Ástþór Örn fann fullt af bláberjum. Mörg þeirra voru orðin alveg tilbúin, sæt og góð!

 

 

 

Eftir góðan göngutúr í Dimmuborgum fórum við í heimsókn til Gerðar á Skútustöðum og eins og

venjulega sló Gerður upp veislu. Hjá Gerði hittum við líka Fríðu og stelpurnar hennar, Dórótheu og Ólöfu Kristínu.

Fríða dreif okkur yfir til þeirra í heimsókn og hér eru Dóróthea og Ástþór Örn á leiðinni frá Gerði heim í prestshús!

 

 

Gaman að leika við þær skemmtilegu systur úti í góða veðrinu. Vonum að það líði ekki

fullt af árum áður en við sjáum þær aftur!

 

 

Mikið að gera í búi þeirra systra!

 

 

Ólöf Kristín og Ástþór Örn að útbúa dýrindis súkkulaðiköku

 

 

 

Einn alveg búinn eftir góðan dag í Mývatnssveitinni.