22. júlí
Við Ástþór Örn höfum reynt að vera dugleg að hafa ofan af fyrir okkur í sumarfríinu. Bíllinn sjaldan verið eins hreinn, enda eitt það skemmtilegast sem Ástþór Örn veit er að fara í sjálfvirkar bílaþvottastöðvar!!
Ekki hefur veitt af í öllu rykinu undan farið.
Við höfum líka farið nokkrum sinnum og hjólað og gengið hér dalinn rétt hjá okkur, sem er mjög skemmtilegt. Skemmtilegast þykir Ástþóri Erni þegar við rekumst á sílaveiðimenn og er ekki lengi að blanda sér í leikinn á meðan ég reyni að brýna það fyrir þessum allt of ungu herramönnum að fara varlega nálægt læknum. Í dag fórum við aftur á móti í Laugardalinn, eins og oft á góðviðrisdögum. Nokkrar myndir!


Ég tók ógurlega mikið af blóma-, trjá- og skýjamyndum!

Ástþóri Erni þykir voðalega gaman að hjóla þennan stíg í Laugardalnum enda engin hætta á því að detta ofan í læk!

Heilsuðum upp á folaldið sem við hittum líka um daginn. Það hafði stækkað svolítið og við sáum ekki betur en að það væri að missa brúna litinn og
verða grár eins og mamma hans.


Röltum svo um í grasagarðinum


Býflugurnar vöktu athygli sem fyrr!


Heilsuðum svo aðeins upp á endurnar líka
