Nokkrar helgarmyndir

 

 

Fínasta helgi að baki. Sigurður reyndar að vinna hluta hennar og svo fór nú einhver tími í skápatiltekt og þess háttar! En við höfðum það nú líka gott hér heima við og úti í góða veðrinu.

 

 

 

Ástþóri Erni þykir ógurlega gaman að baka. Piparkökubakstur er reyndar í miklu uppáhaldi en á föstudagskvöldið bjuggum við til dýrindis eplaköku í sameiningu mæðginin.

 

 

Eftir eplakökuátið dreif Ástþór Örn sig í útilegu með folaldinu Goggopissí. Nafnið skilur ekkert okkar...ekki einu sinni Ástþór Örn sem fann upp á nafninu fyrir rúmum tveimur árum

en hann vill alls ekki kannast við að þetta hafi þá þýtt "kúkur og piss" þar sem það sé nú ekki hægt að nefna folald slíku ónefni.

 

 

 

Í gær skruppum við og gáfum öndunum hér rétt hjá okkur. Okkur Ástþóri Erni þótti þessi pollur nú ekki svo "rétt hjá okkur" í

síðustu viku þegar við fórum í hjóla- og göngutúr þangað!!

 

 

 

 

 

 

 

Þessi mamma hafði nóg að gera með sex unga...einn lenti utan rammans!

 

 

 

Eftir að hafa gefið öndunum brauð fór Ástþór Örn að eltast við býflugur og fiðrildi!

 

 

Nóg var af býflugunum

 

 

Var alveg viss um að það að ef við hefðum öll mjög fljótt gengi betur að ná einni býflugu

 

 

 

 

     

 

 

Endalaust hægt að taka myndir af þessum ótrúlega sæta strák!!