9. júlí
Skruppum til Akureyrar um helgina. Áttum þar fínustu daga, enda boðin í brúðkaup Evu og Torfa á laugardaginn og "brunch" á öðrum í brúðkaupi á sunnudag!
Ástþór Örn skemmti sér stórvel í Litluhlíðinni hjá ömmu og afa á meðan við fórum í brúðkaupið á laugardaginn en skellti sér með á sunnudag. En svo fórum við með Erni og Hillu fram í Eyjafjörð í
jólahúsið og fleira! Nokkrar myndir úr ferðinni.

Á laugardagsmorguninn röltum við aðeins í bæinn og settumst meðal annars inn á kaffihús og fengum okkur smá kaffi og með því

Við mæðgin fyrir utan Akureyrarkirkju, Ástþór Örn lagði ekki í allar þessar tröppur.
Brúðkaupið sem við fórum í var aftur á móti haldið í Grundarkirkju í Eyjafirði ogo það sluppu því
bara allir við tröppurnar að þessu sinni!!

Ástþór Örn í listigarðinum


Okkur þótti þetta fuglahús ansi fallegt



Litli blómálfur



Býflugan kippti sér ekkert upp við myndatökur og hélt áfram með hádegismatinn sinn!

Ástþór Örn tíndi nokkur fallin rósablöð og var ætlunin að búa til listaverk úr þeim

Ástþór Örn fékk að máta brúðarbílinn. Eva bauð honum að setjast í bílstjórasætið en Ástþór Örn lét sér nú nægja farþegasætið og þótti
alveg nógu fullorðins að fá að sitja í framsæti!!!!

Eftir sunnudagsvielsuna skruppum við með afa Erni og ömmu Hillu í jólahúsið

Stækkað svolítið síðan sumarið 2004!!!!


Með afa og ömmu

Í dag brunuðum við svo suður aftur og er þessi herramaður að byrja langt sumarfrí sem vonandi verður skemmtilegt!
Stefnt er að því að vera svolítið í sveitinni og skreppa aftur norður, nú svo eru ýmis smáverkefni á óskalistanum eins og ferð
í húsdýragarðinn, þrífa bílinn (ekki grín!) og fá mig til að mála herbergið hans.