3. júlí
![]()
Ekkert lát á blíðunni og við kvörtum ekki! Við mæðgin ætluðum að skella okkur í Húsdýragarðinn í dag en þar sem allur bærinn hafði greinilega fengið sömu hugmynd ákváðum við að bíða
með það þangað til í sumarfríinu og við getum farið á "skrýtnari" tímum en eftir leikskóla. Sigurður var kominn snemma af heiðinni og ákváðum við að bjóða honum með okkur í fjöruferð.
Ástþóri Erni þótti nú svolítið svindl að ekki væri hægt að vera þar í sólbaði eða synda í sjónum!!!
Vonum að þið hafið haft það gott...hvort sem þið eruð nú búin að vera í góðu veðri eða ekki. Já og takk fyrir kveðjurnar í Gestabókina :o)

Fallegur dagur í Gróttu

Í næstu fjöruferð ætlum við að vera betur búin til fótanna!

strigaskórnir fengu aðeins að finna fyrir því

Gaman að fylgjast með nokkrum andafjölskyldum á klöppinni

Ástþór Örn sat á steini og horfði út á haf...

Ástþór Örn fann margt skemmtilegt í fjörunni...til dæmis þessi horn af sjóskrímsli

Og rifnar marglyttur...


Og lítinn krabba, skeljar, kuðunga og alls konar!


Kríurnar létu okkur alveg í friði


Ég hef óskaplega gaman að fjöruferðum, enda fastur liður af æskuárunum í Vestmannaeyjum! Þessi strákur sem var með mér þarna í dag
var samt sem betur fer ekki alveg jafn frakkur og hann Lárus fjörufélagi í eyjunum. Þessi myndi minnti mig nú samt á það þegar Lárus
stóð og horfði í öldurnar í gamla daga.
![]()