1. júlí
Búin að hafa það gott í sólinni undan farna daga. Allt að komast í rútínu eftir fríið og reyndar bara vika í að Ástþór Örn fari aftur í sumarfrí á leikskólanum. Þá ætlum við nú bara að láta það ráðast af veðrum og vindum hvar við verðum! Verðum reyndar heilmikið hér heima, eitthvað í sveitinni og svo er aldrei að vita nema við skreppum í einhver smáferðalög um landið.
Ástþór Örn er mjög ánægður á Hjalla, deildinni á leikskólanum sem hann byrjaði á rétt áður en hann fór til Tyrklands. Fórum í foreldraviðtal í vikunni og sagði deildarstjórinn að fríið hefði greinilega ekkert gert flutninginn erfiðari því það væri eins og hann hefði aldrei verið annars staðar en á þessari deild. Mjög gaman að því. Um daginn spurði ég Ástþór Örn hvort hann væri ekki ánægður á leikskólanum og jú hann sagðist vera það nema hvað hann kvartaði yfir því að það væri of sjaldan fiskur í matinn!! Í ljósi þess að það er fiskur tvisvar í viku og ekki langt síðan barnið svaraði alltaf "fiskur" þegar hann var spurður að því hvað hefði verið í hádegismatinn er þessi kvörtun ekki tekin alvarlega!
Læt þetta nægja í bili, en hér eru nokkrar myndir teknar síðustu dagana í júní og í dag.

Nemó og Dóra voru í fóstri hjá Tinnu frænku á meðan við vorum úti. Ástþór Örn var ægilega glaður þegar þau
voru komin á sinn stað og sagði þeim hvað hann hefði nú saknað þeirra!!


Loksins fengum við okkur borð og stóla á svalirnar...einmitt á réttum tíma því það hefur skinið sól síðan ;o)

Já og Ástþór Örn fékk sér lítið tjald! Þar er alltaf mikil stemmning, haldnir tónleikar, lesið og fleira!

Mikil tilþrif :o)

Meira að segja búið að vera veður fyrir alvöru sumarföt!

Ástþór Örn búinn að vera úti að leika nánast alla vikuna en hér innan dyra birtist Jói spói þó allt í einu!


Og Superman líka

Nei þetta var nú bara Ástþór Örn en þegar honum þykir ég vera farin að trúa þessum gervum einum of verður
hann mjög stoltur af leikhæfileikum sínum og fullvissar mig um að þetta sé nú bara strákurinn minn hann Ástþór Örn!

Í morgun skruppum við í Laugardalinn

Gáfum fuglunum

Þessari styttu veitti ekki af góðri rigningarsturtu!



Þægilegt að hjóla á breiðum stígnum...þar sem eru engar brekkur!

Dýrin í Húsdýragarðinum létu fara vel um sig í góða veðrinu

Ástþór Örn heilsaði upp á folaldið og sagði því frá hestunum sínum í sveitinni og folaldinu okkar þar!

Hafði engann tíma til að bíða eftir okkur og brunaði áfram


Þegar við vorum nýkomin heim kom hann Björn í heimsókn. Björn er á Álfaheiði og verður fjögurra seinna á árinu.
Það var mjög óvænt ánægja í vikunni þegar við komumst að því að hann býr hér bara í næstu blokk fyrir ofan okkur.
Hér var ansi gaman í garðinum í dag, sápukúlar blásnar, garðurinn vökvaður já og skógareldar slökktir!
Í kaffinu gáfu þeir félagar sér smá tíma til að koma inn og fá sér pönnukökur með okkur ásamt ömmu Hillu og afa Erni.


