Sveitaferð

 

Skruppum í sveitina á fimmtudag og komum heim í dag. Alltaf gaman að fara í Dal en sérstaklega skemmtilegt þegar veðrið leikur við mann eins og þessa daga.

Ólíver og Vigdís komu líka og gátu þeir frændur brallað ýmislegt saman!

 

 

 

Fengum smá rigningu á fimmtudaginn, en þá var bara að draga fram stígvélin og regnkápuna!

 

 

 

Blóðbergið farið að spretta

 

 

Ástþór Örn langaði óskaplega mikið að kíkja á eitt hreiður en fann ekki þó hann leitaði vel og lengi.

Hann og afi hans fylgdust með hreiðri fyrir tveimur árum og dreymir Ástþór Örn um að geta endurtekið leikinn

og fylst með eggjum og svo ungum!

 

 

 

Píla var sem betur fer ekkert spennt fyrir því að hjálpa til í leit að hreiðrum

 

 

Þessi lóa var ekkert á því að vísa okkur á sitt heimili!

 

 

Á leiðinni til baka bjargaði Ástþór Örn tugum ánamaðka af veginum

 

 

 

Reynt að koma möðkunum aftur yfir í grasið og moldina

 

 

Þegar við komum í Dal var verið að járna nokkur af hrossunum. Hér eru þeir nafnar að fara að útbúa smá hólf fyrir þá

 

   

 

Ástþór Örn teymur Létti í girðinguna

 

 

Við Ástþór Örn drifum okkur í gærmorgun niður í haga til að kíkja á folaldið okkar sem kom í heiminn

á meðan við vorum í Tyrklandi.Þetta skjótta fæddist um svipað leyti.

 

 

 

 Hann er voðalega fallegur og Gígja, mamma hans leyfir manni að komast ansi nærri þeim

mæðginum.

 

 

 

 

Ekki enn verið nefndur þessi fallegi "strákur"

 

 

 

 

Ástþór Örn að gefa Gígju smá gras og sá litli gægist úr skjóli mömmu sinnar

 

 

Þessi meri hafði komið í heiminn nokkrum klukkustundum á undan

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ástþór Örn að leita að berjum.

 

 

Ólíver mættur í sveitina og enginn tími í að vera að líta neitt í myndavélina!

 

 

 

En stundum er nú tími til þess! Ótrúlega sætir og skemmtilegir þessir frændur :o)

 

 

 

Þeir eru líka voða góðir vinir

 

 

Ólíver mjög sæll með að vera mættur í Dal

 

 

Fórum í smá göngutúr og hér stilla þeir frændur sér upp með Seljafellið í baksýn

 

 

Svo þurfti nú aðeins að klifra líka

 

 

 

Dúllur að hvíla sig í mosanum!

 

 

 

Á meðan tók ég blómamyndir

 

 

Í dag skelltu þeir Ólíver og Ástþór Örn sér á hestbak. Frakkur ansi ljúfur og leyfði þeim frændum að

fara ófáa hringi!

 

 

Vanur svolítið hraðari ferðum hann Frakkur en hann er alltaf ógurlega ljúfur þegar krakkar fara á bak

 

 

 

 

Búnir að vera úti að leika í allan dag og hér á smá spjalli áður en Ólver og Vigdís héldu heim

 

 

Ástþór Örn að æfa stafi. Engin var skrifblokkin með þannig að kaffipoki varð að duga!

 

 

 

Komið sumar í sveitinni...fyrsti tómaturinn kominn í ljós

 

 

 

 

Fallegt veður...og þarna vinstra megin á bakkanum er Hjalli frændi að renna fyrir laxi

 

 

 

 

 

       

 

Ansi þreyttir nafnar að hvíla sig aðeins en Ástþór Örn lúrði svo alla leið í Ártúnsbrekkuna!