Komin heim!

 

Við komin heim frá Tyrklandi úr mjög vel heppnaðri ferð. Ástþór Örn skemmti sér konunglega og naut sín vel...enda alls staðar dekrað við hann!

Ástþóri Erni þótti sérstaklega gaman á ströndinni að busla í sjónum eða grafa upp og niður fjársjóði. Einnig skemmti hann sér vel í Istanbul, þar sem hann komst sporvagn og hestvagn.

Þar voru líka nokkrir róluvellir já og borg full af kisum...sem mátti nú því miður ekki vera að knúsa. Í Istanbul gaf amma hans honum einnota myndavél og ætla ég nú að skanna inn myndirnar

hans þaðan, sem margar eru stórfínar. En þangað til má nú bara kíkja á myndasíðuna okkar og skoða Tyrklandsmyndir!

Við Ástþór Örn ætlum svo að skreppa í sveitina á morgun, veiða kannski svolítið og ekki síst fara og kíkja á folaldið okkar sem kom í heiminn á meðan við vorum í fríinu. Lofum myndum eftir helgi.