17. maí  

 

Ansi notalegir þessir fimmtudagsfrídagar í apríl og maí! Við búin að eiga góðan uppstigningardag í rólegheitum.

Bar hæst að við mæðgin bökuðum piparkökur með sumarsniði!! Ástþór Örn búinn að biðja mig í marga mánuði að

hjálpa honum að baka piparkökur og í dag bökuðum við loksins og skreyttum - mjög skemmtilegt!

 

 

Glaður bakarastrákur

 

 

 

 

 

 

Ástþór Örn gerir eina (af mörgum) bragðprufum þegar fyrsta platan kom úr ofninum!!

 

 

 

 

Ég má til að sýna ykkur myndina í glugganum í baksýn hjá Ástþóri Erni hér að ofan! Þessa mynd færði hann mér á mæðradaginn

Þetta er fjölskyldumynd, hann lengst til vinstri, þá Sigurður og ég þessi rauða með stórar hendur og hjartað í buxunum...barnið kannski

verið að reyna að lýsa prófskrekk móður hans!! Ástþór Örn var sérstaklega ánægður með árangur sinn í að teikna axlir :o)

 

 

 

Ein með þessu fína myndabrosi

 

 

 

Og svo var hluti afrakstursins skreyttur

 

 

Ástþór Örn var mjög áhugasamur bakari og enn spenntari skreytingarmeistari. Ég hafði ekkert drifið í að verða við ósk

drengsins því ég hélt nú kannski að hann myndi ekki endast lengi við og ég myndi því vera ein að þessu, reyndist

ekki sannspá sem betur fer!

 

 

Trýna og Píla!

 

 

Við mælum með því að baka kökur og skreyta þó það sé sumar! Þessar þrjár eru samvinnuverkefni okkar mæðgina.

 

 

Slappað af eftir kökubaksturinn

 

 

Þeir feðgar að skoða eitthvað sniðugt í tölvunni

 

 

Það er annars að frétta af þessu myndardreng að hann er að byrja aðlögun á efstu deildinni á leikskólanum.

Fjórtán krakkar munu færa sig saman og er það í fyrsta skiptið sem hópur fer saman upp. Okkur líst vel á

þessar breytingar og Ástþór Örn er mjög spenntur og upptekinn af því að bráðum verði hann Hjallastrákur!