12. maí  

 

                                                                                 

 

Byrjuðum helgina í gær á því að fara og hitta risessuna. Það var óskaplega gaman! Vonum að þið hafið flest haft tækifæri til að upplifa þetta skemmtilega götuleikhús.

Í morgun fór ég á bókasafnið og las. Á meðan fóru þeir feðgar í bæinn og freistuðu þess að hitta risann og risessuna...en þau voru þá að fá sér lúr. Þeir fóru því í staðinn í Laugardalinn þar sem Ástþór Örn dreif sig í hjólatúr. Nú svo grilluðum við í kvöld...þriðja kvöldið í röð! Ekki annað hægt þegar er svona mikið sumar!!!!

 

 

  

 

Símamynd frá því í gær!

 

 

 

 

Duglegur að hjóla

 

 

 

Kominn aðeins út fyrir "landhelgina"!!

 

 

 

 

 

 

 

 

Að spjalla við afa. Var úti að leika og fékkst ekki inn til að tala í símann og

sat því á tröppunum og spjallaði! Ástþór Örn sagði afa frá risessunni og

svo reyndi nú Ástþór Örn að leiðrétta afa hans, sem hélt að Eiríkur Hauksson hefði

ekki unnið Eurovision. Já Ástþór Örn alveg klár á því að hann hafi sigrað

þarna á fimmtudag og keppnin í kvöld hafi bara verið allt önnur keppni!

 

 

Sumarstrákur!

 

 

 

Blásnar sápukúlur af miklum móð á meðan við biðum eftir Sigurði sem

fór um allan bæ í leit að gaskút til að við gætum grillað