8. maí
Vor í lofti í dag og þegar við Ástþór Örn röltum heim af leikskólanum fannst okkur tilvalið að skreppa í smá hjólatúr/göngutúr.
Fórum hér niður í dalinn fyrir neðan okkur! Tók nokkrar myndir.

Ástþór Örn tók ekki annað í mál en að taka bangsa með í hjólatúrinn...þykir líklegt að þar sé hann undir
áhrifum frá henni Lottu sem hefur bangsann sinn með sér hvert sem hún fer, meðal annars út að hjóla!

Ástþór Örn var ekki lengi að drífa sig af hjólinu þegar þessi kisa kom mjálmandi í
áttina að okkur og vildi fá smá athygli

Ástþór Örn er mjög hrifinn af köttum. Var greindur með kattaóþol fyrir nokkrum árum en við
erum nokkuð viss um að það sé kominn tími á að kanna það aftur því hann hefur ekki sýnt
neina svörun við þeim kisum sem hann hefur hitt. Draumurinn er að eignast einhvern tímann kött!

Svo var hjólað af stað

Orðið svolítið vorlegra eftir að trén fóru að springa út


Mjög spenntur að leita að býflugum sem sveima hér um þessa dagana

"Hvar eruð þið litlu kríli?"

Þegar við komum inn fannst okkur tilvalið að baka muffins. Ég verð eiginlega að segja að "því miður" hafi ég
lært ákaflega auðvelda uppskrift af muffins, sem eru líka voða góð...nema þau eru bökuð aðeins of oft!!

Ótrúlega notalegt að fá sér mjólkurglas og muffins...svona áður en ég settist aðeins við bækurnar aftur og
Ástþór Örn fór að leika sér.