Fyrstu dagar maí!
Allt gott að frétta af okkur. Ástþór Örn er farinn að hlakka mikið til að komast í sumarfrí til Tyrklands, enda saknar hann afa og ömmu ansi mikið.
Ástþór Örn var reyndar heima fyrstu tvo dagana í maí, með leiðinda hósta og kvef. Fékk ekki hita og nær þessu vonandi úr sér fljótt.
Hér eru nokkrar myndir teknar þessa fyrstu daga í maí!

Ástþór Örn truflaður í perlustandi!

Ástþór Örn hugsar voða vel um gullfiskana sína, þau Nemó og Dóru. Frekar dúllulegt að heyra í honum þegar hann gefur þeim að borða: "eruð þið svöng krílin mín?"!!
Hann vill ólmur hjálpa til þegar skipt er um vatn og fyrir helgina var aldeilis tekið í gegn hjá þeim þegar við settum við nýja plöntu hjá þeim.
Við gátum ekki betur séð en að þeim líkaði vel þetta nýja rauða umhverfi!


Ástþór Örn og Sigurður spila Veiðimann

Jói spói þungt hugsi

Og hér með Elísabetu vinkonu sína sitjandi í skyrtunni!