29. apríl

 

Kominn sunnudagur og við búin að eiga góða og notalega helgi. Í gær kom Ólíver frændi til okkar í gistingu. Við byrjuðum á að skreppa í Húsdýragarðinn og höfðum það svo gott hér heima, bökuðum pizzur og fleira. Í morgun vöknuðu þeir frændur snemma, enda um að gera að nýta tímann í annað en svefn!! Horfðu á smá barnaefni og svo drifum við okkur út að leika. Hér koma nokkrar myndir!

 

 

 

Á leiðinni í Húsdýragarðin í gær

 

 

 

Kíkt á selina.

 

 

Þeir frændur stilla sér upp fyrir framan básinn þar sem hún Stjarna litla er. Hún var einmitt bara nýfædd þegar við mæðgin vorum

í garðinum rétt fyrir páska. Við sáum líka nýfæddu kiðlingana, hesta og svín. Já og kindur, gátum ekki betur séð en að sauðburður væriá næsta leyti!

 

 

Gaman að setjast upp í gamla traktorinn

 

 

 

 

 

Haldið á litlum krabba

 

 

 

 

 

 

 

Röltum svo aðeins í Grasagarðinum, þar var orðið ansi vorlegt

 

 

Gæsirnar röltu sér móðgaðar í burtu þegar þær sáu að við vorum ekki með eina einustu brauðsneið með okkur!!

 

 

 

Leirað af mikilli list!

 

 

Alltaf jafn gaman að fara í ofurhetjubúninga!

 

   

 

Og svo er alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt! Þeim frændum fannst þeir alveg svakalega flottir

sem Anika, en það er litla ömmustelpan hennar Rutar vinkonu ömmu Kötu en þær fóru með okkur

á Karíus og Baktus um daginn! Ástþór Örn hafði á orði að hún hefði nú þurft að vera með þeim að leika og bað mig því um að

finna þessa ljósu hárkollu og sólgleraugu.

 

 

 

Í morgun drifum við okkur út að leika

 

 

 

  

 

 

   

 

Mikið sport að fara í "fjallgöngu" upp brekkuna og koma svo hlaupandi niður!

 

 

 

 

 

Notalegt að koma inn og fá sér hrísgrjónagraut og ostabrauð.

 

 

 

Hafið það gott!!