22. apríl
Kominn fyrsti sunnudagur sumarsins, heldur grár! Sumarið hlýtur að koma fyrr eða síðar. Þökkum fyrir kveðjurnar í Gestabókina, alltaf svo gaman að fá sendar kveðjur! Við viljum líka byrja á því að senda kveðjur! Óskum honum Haraldi Daða vini okkar til hamingju með litlu systur, sem fæddist að morgni 20. april. Elsku Sirrý og Örn,
til hamingju með litla sólargeislann.
Já og á morgun á hún María vinkona okkar afmæli, er að verða sjö ára!! Til hamingju elsku María :o) Það sem tíminn líður.
Við sendum því voða góðar kveðjur í Grafarholtið og til Vänge.
Af okkur er nú allt bara fínt að frétta. Vikan liðið ansi hratt, ég verð með nefið ofan í bókunum og ef ekki þá frekar annars hugar. Á mánaudaginn þurfti ég að sækja Ástþór Örn fyrir hádegi því hann hafði dottið á leikskólanum. Þeir voru nokkrir að klifra upp á þak á kofa og tveir duttu niður. Ástþór Örn kveinkaði sér og hafði víst dottið illa niður þannig að þeim fannst skynsamlegast að hann tæki sér frí það sem eftir væri dagsins. Ástþór Örn var heldur aumur þegar ég kom en varð hinn hressasti þegar heim var komið! Ég talaði við lækni, sem sagði mér að fylgjast bara vel með honum og þar sem hann heyrði í barninu tuðandi í aftursætinu að hann þyrfti ekkert að fara til hjúkkunnar eða læknisins hló hann nú bara og sagðist nokkuð viss um að hann væri hinn hressasti! En hér eru nokkrar myndir úr vikunni.

Stillir sér upp á mánudaginn, ansi glaður að fá að koma svona snemma heim af leikskólanum.

Seinni partinn á mánudag ætluðum við að fara til ömmu Svönu sem varð 75 ára þann dag, en í staðinn litu amma, Vigdís og Ólíver til okkar í heimsókn með himneska afmælisköku. Við héldum því smá afmæliskaffi og áttum notalega stund saman. Þeir frændur fóru í búningamaraþon eins og oft áður, skemmtu sér mjög vel saman.

Ólíver íþróttaálfur. Húfan sem fylgdi búningnum ýfði hárið á honum svona skemmtilega og
fannst okkuar hann ógurlega sætur með þessa fínu hárgreiðslu!!

Þeir eru svo ótrúlega sætir þessir frændur :o)

Vaknaði voða snemma á sumardaginn fyrsta, alltaf gaman að fá þessa auka frídaga! Það beið hans
smá sumargjöf.

"ferskur" sumarstrákur sem vaknaði allt of snemma! Glaður með sumargjöfina sem var
húlahringur, tennisspaðar og lítil Dóra (sem er í miklu uppáhaldi).
Þeir feðgar fóru í langan göngutúr á sumardaginn fyrsta, á meðan ég sat inni og vann. Þar sáu þeir Lóuna í fyrsta skiptið
á þessu sumri/vori.

Í gær skruppum við í bíó. Fórum að sjá Robinson fjölskylduna. Þegar við komum út úr bíóinu
sagði Ástþór Örn "þetta var bara virkilega skemmtileg mynd"! Hafðu nú samt á orði að það hefði
vantað afa með, enda hafa þeir nafnarnir verið duglegir að fara í bíó. Þegar heim var komið
saknaði Ástþór Örn afa enn meira og hafði á orði að það væri nú skrýtið að hafa ekki hann afa
með í dýraleiknum. Já það er svona að eiga afa og ömmu með útþrá!!!!

Við höfum verið að reyna að koma okkur í vorstemmningu með því að spila tennis og æfa okkur með húlahringinn!!
Það fer vonandi að koma gott veður til að iðka sumarleikina úti.

Í gærkvöldi elduðum við okkur innbakaðan lax. Ástþór Örn fékk svo að skera út skrautið ofan á "laxakökuna". Voðalega gaman, enda
þykir Ástþóri Erni mjög skemmtilegt að hjálpa til í eldhúsinu.

Í gær var verið að skipta um rúmföt um leið og Ástþór Örn átti að fara í náttföt. Það var miklu skemmtilegra að "hjálpa" til við að taka af rúminu heldur en fara í náttföt!!

Aðeins kúrt áður en hann dreif sig í náttföt og í sitt notalega rúm.
