15. apríl

 

 

T'iminn líður sem aldrei fyrr og apríl hálfnaður! Við erum búin að eiga fínustu helgi. Fórum í boð í Langagerðið á föstudaginn. Amma og afi buðu í þetta fína matarboð þar sem þau voru að fara í dag til Tyrklands í voða langan tíma! Í gær átti Sigurður afmæli og tókum við Ástþór Örn okkur til og bökuðum amerískar pönnukökur og afmælisköku. Sigurður bakaði svo pönnukökur seinna um daginn og komu nokkrir gestir til að heiðra afmælisbarnið! Í dag höfum við svo bara tekið því rólega. Sjálfsaginn alveg að fara með síðuhaldarann sem verður örugglega rosa duglegur að uppfæra næstu vikurnar þar sem próf- og verkefnatími er að ganga í garð!!!

 

 

 

Ástþór Örn hjálparkokkur.

 

 

Notalegur afmælismorgun með nokkrum pökkum

 

 

 

Ástþóri Erni fannst afmælisbarnið aðeins of lengi að þessu þannig að hann hjálpaði svolítið til

 

 

  

 

Ástþór Örn fékk bað um að fá að skreyta afmæliskökuna og fórst það ansi vel úr hendi!

 

 

Og hér ein af Sigurði og afmæliskökunni! Ástþór Örn fann hér ofan í skúffu þessi fínu

afmæliskerti og var ein öndin sett á kökuna.

 

 

 

Og ein af gestunum í morgunafmælisboðinu :o)

 

 

 

Ástþór Örn átti ansi rólegan og notalegan laugardag í gær og var nú bara á náttfötunum langt fram eftir degi

 

 

Og hvað er betra daginn eftir afmæli en að fá sér smá afmælisköku!

 

 

 

Við mæðgin að spila "Spotty Dogs" sem ég keypti um daginn og hefur komið mjög sterkt inn!

 

 

 

Þegar allir hundarnir eru gengnir út er spjöldunum snúið við og beinin í körfunum talin.

Ástþór Örn hefur reynst mjög sigursæll í þessu nýja spili og hefur æft sig vel í að telja...

en ekki hefur alveg reynt eins mikið á það að taka tapi með sæmd. Aumingjans barnið hefur því

miður erft brot af tapsárindum móður hans.

 

 

  

 

Ástþóri Erni finnst voðalega gaman að skreppa hér út í garð að leika. Verst er að ekki er neitt af krökkum á

svipuðum aldri og hann hér í nágrenninu. Hann skilur ekkert í því af hverju litli stúfurinn á efri hæðinni drífi sig ekki bara

út til hans, en hann er nú bara fimm mánaða þannig að það er sjálfagt bið á því að hann komi út í gröfuleikinn!!

 

 

 

 

 

 

 

Ástþór Örn fær hér stundum að keyra á Maríubílnum svo kallaða! María og Hugi voru svo góð að lána Ástþóri Erni

bílinn þegar hann var að læra að labba í byrjun árs 2004! Og bíllinn er enn hjá okkur og Ástþór Örn spyr nú stundum

hvort hann þurfi ekki að fara að skila bílnum. Honum þykir þetta ansi mikil góðvild hjá þeim systkinum, að leyfa honum

að hafa bílinn í allan þennan tíma...þó hann sé löngu búinn að læra að ganga.