Páskafrí í sveitinni

 

 

Vonum að þið hafið haft það gott yfir páskana. Við fórum í sveitina og áttum þar góða daga. Veðrið hefði nú mátt vera betra en við reyndum þó að vera svolítið úti.

Höfðum það svo gott innan dyra, borðuðum góðan mat og auðvitað páskaegg!

 

 

Við skruppum í smá göngutúr á föstudaginn. Ástþór Örn, Píla og Trýna stilltu sér upp á þessari fínu mynd

 

 

  

 

Alltaf gaman að leika í sandkassanum                                Ástþór Örn í vorhug með slátturvélina á lofti

 

 

 

 

Ástþór Örn eins og kóngur í ríki sínu á dráttarvélinni sinni í Dal :o)

 

 

 

 

 

Afi Ástþór og amma Kata gáfu Ástþóri Erni ansi flottan bol þegar þau komu frá Tyrklandi síðast og hér eru þeir nafnar að mála myndina

á bolnum.

 

 

  

 

Mjög skemmtilegt!

 

 

Bolurinn tilbúinn og stórglæsilegur!

 

 

 

 

 

Í fjárhúsunum.

 

 

Ástþór Örn heilsar upp á Blíðfinn

 

 

Á laugardaginn fengum við skemmtilega heimsókn. Davíð, Inger, Daniel, Lára Dís og Lilja Rós eru í páskafríi á Íslandi og

komu til okkar í sveitinna í einn dag.

 

 

Ástþór Örn og Lilja Rós, sem verður þriggja ára í byrjun maí

 

 

Daníel á ferðinni í rólunni

 

 

 

Lilja Rós og Ástþór Örn stilla sér upp með Pílu

 

 

 

Píla knúsuð á páskadag

 

 

Notalegheit á páskadagsmorgni

 

 

Ástþór Örn bíður á meðan amma Kata felur annað páskaeggið

 

 

Ástþór Örn að leita!

 

 

Varð heldur betur glaður þegar púkaeggið komst í leitirnar

 

 

 

 

Svo var farið í smá ratleik til að finna hitt eggið! Ástþór Örn stóð sig vel og leitaði að vísbendingum...

 

 

Safnaði saman miðunum með vísbendingunum og var leiddur um húsið. Endaði í vinnuherberginu hans afa þar sem

eggið leyndist!

 

 

Og var þar annað púkaegg. En þau voru draumaeggin í ár. Málshættirnir: Lík börn leika best og elska sækir elskuna heim

 

 

Ástþóri Erni þykir ansi gaman að tefla. Afi Ástþór kenndi honum fyrr í vetur að raða upp og núna er hann að ná tökum á

manngangnum.

 

 

 

Verið að raða upp lestarbreutinni

 

 

 

Við klæddum okkur seint um og síðir á páskadag og skruppum þá og heilsuðu upp á hrossin

 

 

Ástþór Örn var voðalega glaður að hitta hann Frakk

 

 

Og hér er hann Dufgus sem er næstum fjögurra vetra. Það á aðeins að byrja að temja hann í sumar.

 

 

Fínasta páskafrí búið og nú erum við bara farin að hlakka til þess að fara í sumarfrí!! Hafið það öll gott.