6. apríl  

 

 

 

Páskafríið byrjað og mikil kátína með það á þessu heimili. Við Ástþór Örn byrjuðum fríið eftir leikskóla á miðvikudaginn á að fara í Húsdýragarðinn. Höfum svo bara haft það gott hér inni og úti í góða veðrinu. Ástþór Örn bíður eftir að páskadagur renni upp með leit að páskaeggjum! Hafið það öll gott og gleðilega páskahátíð.

 

 

Ástþór Örn í sparifötunum í miðju fermingamaraþoni síðustu helgi!

Eftir helgina var drengurinn farinn að leggja drög að eigin fermingu með fánaköku og köku með mynd af Barbaþór!!!

 

 

 

Á miðvikudaginn skruppum við í Húsdýragarðinn.

 

 

Ástþór Örn heilsar upp á Tý, sem tók því rólega. Hann hafði einmitt orðin pabbi þennan sama dag!!

 

 

 

Kýrnar slöppuðu af og þarna á bak við þær svaf nýjasti meðlimur húsdýragarðsins vært. Lítla kvígan kom í heiminn nokkrum

klukkustundum á undan og vorum við því ekkert að ónáða hana með óþarfa myndatökum.

 

 

 

Geiturnar alltaf kátar og leyfðu Ástþóri Erni að klappa sér

 

 

 

Gamli traktorinn alltaf vinsæll

 

 

Rebbi safnar kröftum

 

 

 

Eftir ferðina í Húsdýragarðinn fórum við í Langagerðið í kaffisopa og súkkulaðiköku

 

 

 

 

Ástþór Örn kennari að kenna stafina

 

    

 

Fékk reyndar smá aðstoð við þetta fína E á töflunni en hina stafina skrifaði Ástþór Örn alveg sjálfur

 

 

 

Þegar við vorum í Langagerðinum um daginn fórum við í geymsluna og fundum nokkrar bækur sem ég hafði átt.

Gaf Ástþóri Erni þó nokkrar bækur fyrir nokkru síðan og hafa þær margar alveg slegið í gegn. Núna fundum við margar

skemmtilegar, þar á meðal Víst kann Lotta að hjóla. Sjálfri þótti mér bækurnar af Lottu alveg frábærar og

Ástþór Örn virðist á sama máli...sem betur fer!!

 

 

Alltaf gaman að leira

 

  

 

 

Lítil mýsla og gullfiskur

 

 

Litla mýslan eignaðist svo þessa enn minni mýslu!

 

 

Ástþór Örn einbeittur að leira geimverumömmu...aðeins hugmyndaríkari en ég!

 

 

Með rosa fínt hár og fjögur augu...missir örugglega ekki af neinu sú mamma

 

 

 

 

 

Krókusarnir í garðinum okkar reyna að sannfæra okkur um að vorið sé komið!

 

 

 

 

 

Úti að leika í sandkassanum

 

  

 

Svaka fjör í rólunni :o)

 

 

 

Í gær skruppum við í Laugardalinn. Ástþór Örn duglegur að hjóla

 

 

  

 

Og eftir hjólatúrinn var fuglunum gefið brauð

 

 

Gæsirnar komnar í röð og bíða eftir bita!!

 

 

 

Fallegasta veður en þó svolítið kalt