31. mars

 

 

 

Enn og aftur helgi! Og um að gera að setja inn nokkrar myndir á þessum síðasta degi marsmánaðar. Við Ástþór Örn fórum í íþróttaskólann í morgun og skemmtum okkur stórvel. Ástþór Örn er mjög duglegur að bjóða sig fram í leikjum og fékk í morgun að vera sérlegur aðstoðarmaður kennarans! Leiddist það ekki. Hann gerir allt þarna af miklu kappi og skemmtir sér líka voða vel. Í dag var svo fyrsta ferming helgarinnar af þremur. Friðrik Aðalsteinn var fermdur, eins og það er nú stutt síðan hann var bara fjögurra ára eins og Ástþór Örn er núna. Bræður hans eru nú ekkert minni herramenn...eins og er nú stutt síðan þeir bara fæddust!! Og á morgun erum við að fara til tveggja frænda okkar sem ég bara skil varla hvernig geti verið komnir á fermingaraldur. Svona er þetta!

Við Ástþór Örn áttum nú góðan dag í dag áður en við fórum í ferminguna. Horfðum á Happy Feet sem við náðum ekki að sjá í bíó. Hún féll vel í kramið hjá okkur báðum...svona fyrir utan það að ég var næstum komin með samviskubit yfir að þykja fiskur góður undir lokin!!!

En nóg í bili. Hafið það gott um helgina.

 

 

 

Á fimmtudaginn beið Ástþór Örn spenntur við gluggann og beið eftir Haraldi Daða vini sínum

 

 

 

Gömlu tindátarnir hans Sigurðar Ágústs voru dregnir fram og vöktu mikla lukku

 

 

Svo var að sjálfsögðu farið í nokkra búninga. Haraldur Daði stórglæsilegur Jói spói

 

 

Svo var farið í sjóræningjaleik. Þeir félagar höfðu nú ansi lítinn tíma til að koma og fá sér kaffi með okkur mömmunum. Voru svo

prúðir að hér var setið og spjallað fram á kvöld!

 

 

 

Í gær kom Ástþór Örn með þennan glæsilega páskaunga heim af leikskólanum en þar hafa þau verið að föndra margt fallegt páskaskraut

 

 

Batman mættur á svæðið

 

 

 

Superman tók svo við á vaktinni stuttu síðar!

 

 

 

 

 

Ástþór Örn að föndra

 

 

 

Ég klíndi mér inn á eina mynd með sæta stráknum mínum :o)

 

 

 

 

Meira föndur. Hér er verið að stimpla með hinum sívinsælu Juliusstimplum. Ermarnar eru mikil snilld þykir okkur þar sem oft

vildi klínast svolítið í ermarnar. Amma og afi fengu þær ásamt svuntu í Istanbul

 

 

 

Ástþór Örn er sérlegur áhugamaður um vinnuvélar og var því svona líka glaður þegar amma hans og afi leyfðu honum að

taka sérblað um Vinnuvélar sem fylgdi Mogganum í dag þegar við kíktum í kaffi til þeirra!!!! Ég átti bágt með mig hér áðan þegar ég heyrði Ástþór Örn

benda á álitlegar vélar og sagði "nei...maður minn...þú verður að sjá þetta pabbi".