27. mars

 

 

Góð helgi að baki. Ástþór Örn er alltaf jafn glaður þegar kemur að helgarfríi, þó hann sé nú voða ánægður á leikskólanum á virku dögunum líka!

Á laugardaginn var farið í íþróttaskólann og við áttum svo notalegan dag í rólegheitum. Í gær var svo komið að því að fara og sjá þá bræður Karíus og Baktus í leikhúsinu. Fórum með ömmu Kötu, Vigdísi, Ólíver, Rut vinkonu ömmu og Aniku, ömmustelpunni hennar. Skemmtum okkur öll stórvel. Alltaf svolítið blendnar tilfinningar sem maður hefur í garð þeirra Karíusar og Baktusar!! Eftir leikhúsið buðum við í smá kaffiboð, ansi gaman. Sigurður bakaði pönnsur og við mæðgin höfðum bakað múffur.

Eftir leikskóla í dag drifum við Ástþór Örn okkur í Laugardalinn með hjólið hans með okkur. Við grípum tækifærið svona þegar kemur örlítið vor í loftið inn á milli!!

 

 

 

Ástþór Örn hefur svakalega gaman að því að spila á gítarinn sinn

 

 

 

 

  

 

Ástþór Örn að útbúa klippimyndir

 

  

 

 

 

 

Vorum nú bara inni á laugardaginn, ukum við nánast heim eftir íþróttaskólann og vorum nú bara inni eftir það

 

 

Ekki vorar úti og við reynum að gleðja okkur svolítið með nokkrum blómum í vasa!

 

 

Jói spói vígalegur á svip

 

 

Og Jói spói ansi blíður á svip :o)

 

 

Sjóræningi í sjóræningjaleik

 

 

 

 

Á sunnudaginn bökuðum við múffur til að bjóða upp á eftir leikhúsið. Hér er aðstoðarbakarinn að undurbúa múffuskreytingar

 

 

 

Enn svolítið í páskana en við ákváðum nú samt að gera svolítið páskalegt hjá okkur

 

 

 

 

Páskaliljurnar okkar að byrja að springa út

 

 

 

Leikhúsfélagarnir

 

 

Höfðu nú eitthvað lítinn tíma í myndatökur og gátu alls ekki komið sér saman um það hvort best væri að segja "sís" eða eitthvað annað

til að ná fram brosi!!

 

 

 

Eins og má sjá á myndunum okkar þá eru búningar mjög vinsælir hjá þessum herramanni

 

 

Rosalega sterkur súperman með lítinn fugl sitjandi á brjóstvöðvunum!

 

 

 

Að hjóla í Laugardalnum í gær

 

 

 

Þægilegt að hjóla þar á breiðu og góðu stígunum fjarri umferðinni

 

 

 

 

 

Fórum og skoðuðum gömlu laugarnar. Ég sagði Ástþóri Erni aðeins af gömlu laugunum og honum fannst mikið til

þessarar styttu koma og spurði hvort að konurnar hefðu alltaf verið svona allsberar að þvo...???

 

 

 

Búin að fræðast um gömlu þvottalaugarnar og sjá gamlar myndir. Ástþóri Erni fannst mjög gaman að skoða þetta allt saman

og næst erum við að spá í að skella okkur á Árbæjarsafnið

 

 

 

Ánægður hjólakappi á leiðinni til baka í bílinn