18. mars

 

Aldeilis nóg að gera í uppfærslum á þessari síðu! Búin að eiga ansi góðan sunnudag og máttum til með að setja inn nokkrar myndir.

Byrjuðum daginn á því að fara aðeins út og leika í snjónum. Svo var drifið í smá tiltekt...meðal annars herbergi Ástþórs Arnar tekið í gegn en það var orðið heldur ruslaralegt þar.

Ástþór Örn fór svo með afa sínum Ástþóri í bíó á Skolað burtu og skemmtu þeir sér báðir stórvel. Við tókum svo á móti þeim í pönnukökukaffi eftir bíó.

 

 

Það er ekkert hægt að svekkja sig á því að vorið sé ekki komið, drífa sig frekar bara út að leika í snjónum!!

 

 

 

 

 

Krúsidúlla með eplakinnar

 

 

 

Þeir feðgar fóru saman eina ferð á snjóþotunni

 

 

Ástþór Örn fór hverja ferðina á eftir annarri og skemmti sér stórkostlega...skríkti og sagðist alveg vera með

friðrildi í maganum!!

 

 

 

 

 

 

Gott að koma inn og fá heitt kakó

 

 

 

Þegar þeir nafnar komu úr bíóinu var Ástþór Örn ekki alveg á því að það ætti eitthvað að fara að setjast

í pönnukökukaffi...nei afi átti bara að koma og leika!

 

 

 

Bíófélagarnir og nafnarnir kátir á sunnudegi!

 

 

Hafið það öll gott!