17. mars
Og þá er það enn ein helgin! Allt gott að frétta af okkur. Við Ástþór Örn fórum í íþróttaskólann í morgun og skemmtum okkur bæði vel. Lentum svo í þessari líka snjókomunni á leiðinni heim! Ekki alveg farið að vora hér hjá okkur. Erum svo búin að vera í rólegheitum hér heima og á leið í mat til ömmu og afa í Langa í kvöld, ekki ónýtt það.

Ég, amma Kata og afi Ástþór skruppum til Parísar um daginn. Þeir feðgar voru í Langagerðinu á meðan og gættu hunda og gullfiska!
Við komum öll færandi hendi og hér er Ástþór Örn að kíkja á glaðning sem afi hans færði honum.

Gjöfin féll heldur betur í góðan jarðveg! Þar sem Jack Sparrow (eða Jói spói eins og við köllum hann) er í miklu uppáhaldi.


Í vikunni skruppum við mæðgin aðeins í göngu- og hjólatúr.

Ástþór Örn ansi einbeittur að hjóla. Við förum vonandi að komast oftar út að hjóla...svona þegar fer að vora!

Ástþóri Erni þykir voða gaman þegar við bökum múffur. Ég á alltaf erfitt með að neita þessari beiðni þar sem
uppskriftin er svo einföld og afraksturinn góður :o)

Skreytt af mikilli alúð


Perlað í gærkvöldi

Hetjurnar úr myndinni Cars eru svona með því vinsælasta hér á heimilinu. Þetta púsl er því ansi oft dregið fram!

Mér leiddist ekki að vera komin í land Barbapapa í síðustu viku!! Fann þar þennan fína bol á herramanninn sem
heldur orðið alveg jafn mikið upp á þessa fjölskyldu og við foreldrarnir fyrir þó nokkuð mörgum árum.