3. mars

 

Enn ein helgin hálfnuð. Það er ótrúlegt hvað þetta líður allt saman. Ástþór Örn fór í íþróttaskólann í morgun og skemmti sér vel eins og venjulega.

Honum þykir voðalega gaman og stendur sig vel.

Höfðum það svo notalegt hér heima meðal annars í pönnsukaffi og múffubakstri! Í kvöld fórum við svo í Langagerðið í matarboð þar sem einnig voru Viktor og Patrick frændur okkar. Ástþóri Erni fannst frkar gaman að hitta þessa stóru frændur sína. Á morgun ætlum við svo að skella okkur til Hveragerðis í afmælisheimsókn til Ólívers frænda, sem er að verða þriggja ára næsta þriðjudag...talandi um að tíminn líði hratt!!!

 

 

Mynd sem afi Ástþór tók af nýklippta stráknum

 

 

Við mæðgin skruppum fyrir helgi og gáfum öndunum, gæsunum og álftunum hér á pollinum rétt hjá okkur

 

 

 

 

 

Fallegt veður en svolítill vindur þannig að við drifum okkur að koma út þessum brauðsneiðum sem voru í boði

 

 

Og það var barist um bitana!

 

 

Gæsir kannski á leið á Tjörnina

 

 

Þessi herramaður er ógurlega hjálplegur við heimilisstörfin. Hjálpar oft við að leggja á

borðið og taka úr uppþvottavélinni.

 

 

Bakaraofninn okkar hefur í rólegheitum verið að gefa upp öndina. Sjálfstæður vilji verið að styrkjast þar

sem hann ákveður hitastig og er greinilega mislyndur því hann rokkar mikið upp og niður!! Og svo var hann

um það bil búinn að kveikja í skápunum fyrir ofan hann. Við vildum því ekki bíða mikið lengur og fengum nýjan ofn í gær.

Við mæðgur fórum í ofnaleiðangur, þar sem ofninn í Langagerðinu átti við sömu "skapgerðarbresti" að stríða og okkar, fengum fínt tilboð og

erum núna með nýja ofna!!

 

 

   

 

Ástþóri Erni leist vel á allar umbúðirnar sem þurfti að taka utan af ofninum, sótti verkfæratöskuna og tók til hendinni

 

 

 

Eftir ofnastand, smá sjónvarpsgláp og desert brá Ástþór Örn sér í bað. Alltaf jafn gott að fá að kúra aðeins undir sæng

eftir bað, áður en er farið í náttföt

 

 

Mátti til að smella einni af orkideunni minni um leið og ég myndaði strákinn minn!

 

   

 

 

 

Í dag var nýji ofninn prufukeyrður. Ákváðum að baka múffur til að taka með í Langagerðið. Ástþór Örn sjálfskipaður takkastjóri

er aldrei fjarri þegar matvinnsluvélin er dregin fram

 

 

Og ofninn kemur sterkur til leiks! Er ekki frá því að við fjölskyldan séum orðin heimilistækjatrúar eftir þessar endurbætur síðustu mánaða

 

 

Við mæðgin að skreyta þessar litlu orkubombur

 

 

 

 

Fallegar að utan sem innan!! Brögðuðust mjög vel. Verst hvað þær eru auðveldar...það gæti þýtt það að þær yrðu bakaðar of oft ;o)

 

 

 

  

 

 

Kominn í Langagerðið...brugðið á leik með Viktori stóra frænda

 

 

 

 

 

Ástþór Örn, Viktor, Patrick og Sigurður

 

 

 

Eftir matinn góða spiluðum við Okay. Patrick var ansi fljótur að læra og vann í öðru spili!

 

 

 

 

Góða helgi, hafið það gott!