26. febrúar

 

Ástþór Örn var himinsæll með síðustu viku. Afmæli á bolludegi, sprengidagur og öskudagur. Á öskudaginn fór Ástþór Örn í Supermanbúningi á leikskólann. Eftir leikskóla komu svo amma Kata og Ólíver í heimsókn í smá öskudagskaffi. Á fimmtudag komu svo Malla, Einar Örn og Kristján Örn. Það var voða gaman að fá þau loks í heimsókn. Ég var aftur á móti alveg sótandi ill þegar tölvan fraus þegar ég var að flytja yfir myndir af þeim frændum og myndirnar hurfu. Ég á enn bágt með að trúa að svona geti gerst og er enn að reyna aðferðir til að ná í skottið á þeim. Alveg ferlegt. En Malla, þið verðið bara að kíkja fljótlega aftur svo ég geti tekið aðra umferð af myndum!!

Um helgina fór Ástþór Örn svo í sveitina með afa Ástþóri og ömmu Kötu. Skemmti sér stórvel eins og alltaf í sveitinni. Það var reyndar ekki mikið hægt að vera úti vegna hávaðaroks en hann náði að líta í fjárhúsin og heilsa upp á hrossin. Í dag fékk Ástþór Örn reyndar að vera heima þar sem hann hefur verið með svolítinn hósta og kvef undan farna daga. Vissum ekki alveg hvort hann væri að leggjast eða hressast. En hann var hinn hressasti í dag þannig að ég á ekki von á öðru en að hann fari í stuðið á leikskólanum á morgun.

 

 

Þegar Ástþór Örn var kominn í búninginn á öskudaginn vildi hann fá að líta á sig í spegli áður en ég tæki mynd...ég laumaðist nú samt og smellti af einni, enda leit hann ansi vel út þessi Superman!

 

 

 

  

 

Ólíver kom til okkar í heimsókn á öskudaginn. Á leikskólanum hans hafði verið náttfatapartý og var hann drifinn í búning þegar hann kom.

Ástþór Örn hér að reyna að fá hann í Batmanbúning en Ólíver leist betur á að fá að vera bangsi!

 

 

Á föstudaginn var Ástþór Örn í fríi á leikskólanum því lagt var af stað í sveitinna um hádegi. Hér er hann að perla með flottu mótunum sem

Einar Örn og Kristján Örn færðu honum í afmælisgjöf. Ástþór Örn hefur ansi gaman að því að perla og ný mót slógu alveg í gegn. Við drifum í að perla

hann Frakk, sem þið sjáið þarna standandi! Ástþór Örn dreif sig svo í að perla krókódíl á meðan ég dundaði mér við friðrildi!

 

 

 

Ástþór Örn kom með smá nesti með sér úr sveitinni og var því með notalegan kaffitíma þegar heim

var komið á sunnudaginn.

 

 

 

Ástþór Örn Sætilíus á leiðinni í klippingu í dag. Það er af sem áður var og nú er hann hinn spenntasti að fara í klippingu.

Núna var hann meðal annars búinn að nefna við mig að láta klippa svolítið stutt og hafði heilmikið um málið að segja þegar komið var á hárgreiðslustofuna.

Ég leyfði honum því að ráða þessu!

 

 

 

Mömmunni þótti þetta svolítið stutt en Ástþór Örn var mjög ánægður með afraksturinn,

sem er jú fyrir mestu!!

 

 

Nýklippt fjögurra ára krúsídúlla!!

 

 

 

Og hér er svo ein af þeim Nemó og Dóru sem ég sá um að passa fyrir Ástþór Örn um helgina. Þau eru nú hálf fyndin og við Ástþór Örn blásum á allar sögur af

gullfiskaminni því við viljum meina að þau séu farin að þekkja okkur! Ástþór Örn gengur meira að segja svo langt að segja að hann þekki þau í sundur, leiðréttir þá sem halda að Nemó sé Dóra og öfugt!!!Þegar maður nálgast búrið koma þau upp að yfirborðinu í von um að verið sé að fara að gefa fóður. Sem betur fer fengum við skýr fyrirmæli í búðinni um það hvað mætti gefa mikið,

því annars værum við sjálfsagt alltaf að gauka að þeim örlitlu gullfiskafóðri!!

 

 

Hafið það öll gott og takk fyrir að vera dugleg að senda okkur kveðjur í Gestabókina.

Það er alltaf gaman að fá þær!