5. febrúar 

 

 

Kominn febrúar og tvær vikur í fjögurra ára afmæli Ástþórs Arnar. Hann er orðinn ansi spenntur fyrir afmælinu sínu, en ekki síður bolludeginum og öskudegi.

Helgin var annars sú besta hér hjá okkur. Ástþór Örn fór á laugardagsmorguninn í íþróttaskólann og skemmti sér vel. Skelltum okkur svo í bíó, á vefinn hennar Karlottu. Fínasta mynd og við skemmtum okkur vel og ég þurfti að berjast við tárin alla myndina, sat með titrandi höku og full augu af tárum!

Við Ástþór Örn stefnum að því að ná okkur í bókina og lesa fyrir svefninn. Hér eru nokkrar helgarmyndir!

 

 

 

Ástþóri Erni finnst ægilega gaman þegar við búum okkur til pizzu

 

 

 

Hann vill nú aðallega ost en bað í þetta skiptið um að fá líka "steik" á sína pizzu!!

 

 

   

 

Eins og yfirleitt alltaf smakkaðist voða vel

 

 

 

Ástþór Örn í Supermannáttfötum....sem má raunar ekki kalla náttföt heldur búning, sem má sofa í!!

 

 

 

Feðgar að spila. Ástþór Örn er ansi lunkinn í spilinu Gettu hver

 

 

      

 

Það var ansi vetrarlegt úti á sunnudagsmorgun en héldum okkur þó bara inni í hlýjunni

 

 

 

 

Ástþór Örn að teikna geimskip og aðeins síðar bættist svo geimverufjölskylda inn á myndina

 

 

 

Ástþóri Erni finnst voðalega gaman að dunda sér við að spila á þessar litlu spilabækur eða gamla skemmtarann minn

 

 

 

Á sunnudaginn ætluðu Vigdís, Ólíver og Marteinn að líta á okkur en komust því miður ekki.

Við vorum því þrjú í notalegu kaffiboði í gær.

 

 

     

 

 

         

 

Ástþór Örn föndrari. Er hér að stimpla með fínu Júlíusarstimplunum sem Diddi frændi hans færði honum fyrir jólin

 

 

 

Hafið það gott!