28. janúar    

 

 

 

Við búin að eiga notalega helgi. Byrjaði vel á kósíkvöldi hjá okkur mæðginum en Sigurður var á Þorrablóti í vinnunni. Elduðum okkur gott og horfðum á mynd um dúfuna Valiant. Ástþór Örn fór svo í íþróttaskólann í gær og skemmti sér konunglega. Áttum svo voða notalegt hádegi hjá ömmu og afa í Langagerði, borðuðum voða góðan hádegismat og spiluðum. Í dag var svo rólegheitardagur, alveg eins og sunnudagar gerast bestir!

 

 

Ástþór Örn æfir sig að skrifa stafi

 

 

Þeir nafnar voru saman í spilaliði

 

 

 

Ástþór Örn stekkur á milli stóla og passar að detta ekki í sjóinn!!

 

 

 

Spóaleggur!!

 

 

 

Ástþór Örn hefur alltaf jafn gaman að því að raða babúskunum

 

 

Svolítið síðan hann lék sér að þeim hér!!

 

 

 

Í dag vorum við að fara í gegnum eitthvað gamalt dót við Sigurður og Ástþór Örn

hafði upp úr krafsinu þessi fínu gleraugu og fánamerki!

 

     

 

Spilað á harmonikuna af mikilli innlifun

 

 

 

Notaleg stemmning á sunnudagskvöldi

 

 

 

Hafið það gott