Þorrinn genginn í garð

Eitthvað fer lítið fyrir uppfærslum á síðunni þessar fyrstu vikur ársins. Ég hef verið of léleg að mynda enda er maður ansi svifaseinn og nær fáum "kodak moments" á enn svifaseinni myndavél!!!
Bóndadagur í dag og vona ég að allir herramenn hafi átt góðan dag. Þið munið svo bara að Góan hefst 18. febrúar!! Ástþór Örn er hress og kátur. Hefur verið ansi spenntur fyrir Þorrablóti leikskólans sem var haldið í dag. Reyndar stóð hákarlinn ekki undir væntingum en Ástþór Örn var glaður með þetta allt samt sem áður og var hér sannkölluð Þorrastemmning þegar hann gekk inn úr dyrunum í dag ilmandi eins og harðfiskur!! Á morgun er Ástþór Örn svo að byrja í íþróttaskóla og er mikið spenntur. Verður gaman að sjá hvernig það gengur.
Óskum ykkur góðrar helgar og enn og aftur takk til ykkar sem munið eftir gestabókinni :o)

Mikið spilaæði hefur gripið um sig eftir jólin, en Ástþór Örn fékk nokkur voða skemmtileg
spil í jólagjöf. Hér vorum við að spila "Gettu hver?"

Og slönguspil með Dóru og Klossa

Spáð og spekúlerað!!

Ástþór Örn "ljón" í búri

Í dag var Þorrablót á leikskólanum og eins og fyrri ár bjuggu þau til víkingahjálma.

Feðgar í stuði á bóndadaginn!