Fyrstu dagar og þrettándinn 2007
Gleðilegt ár! Vonum að árið hafi byrjað vel hjá ykkur öllum. Og kærar þakkir fyrir kveðjurnar í Gestabókina. Okkur finnst voða gaman að fá þær.
Allt að komast í rútínu eftir jólafrí og fannst Ástþóri Erni gaman að mæta aftur á leikskólann, hitta alla krakkana og leika sér.
Nú er rúmlega vika í að ég losni úr gifsinu og ég veit ekki hvort er spenntara ég eða Ástþór Örn! Við búin að plana skemmtilega daga úti við þegar ég verð
komin á ról.
![]()
![]()

Snjótittlingarnir flykkjast í birkitréð fyrir utan hjá okkur og gaman að fylgjast með þeim

Ástþór Örn hafði óskað sér búðakassa í jólagjöf og varð að ósk sinni!

Og hér með slökkvistöðina góðu frá Ólíver þar sem hefur verið nóg að gera!

Afi Ástþór sótti nafna sinn snemma á leikskólann á föstudaginn og þeir skruppu í bíó. Skemmtu sér mjög vel
á Artúri og Minimóunum. Hér sitja þeir spenntir yfir playmolistanum þar sem Ástþór Örn sá
ansi margt sem hann langaði...og hreinlega vantaði mjög!
![]()
![]()

Mæðgin á þrettándanum.


Ástþór Örn fór út á svalir og fékk að halda á nokkrum vasaljósum.
Því miður höfðu gleraugun gleymst í sveitinni og Ástþóri Erni fannst
því vissara að halda ljósunum í góðri fjarlægð.


![]()
![]()